- Skattar
Árið
2017, föstudaginn 26. maí, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í
Dómhúsinu við Lækjartorg af Guðjóni St. Marteinssyni héraðsdómara, kveðinn upp
dómur í málinu nr. S-427/2016: Ákæruvaldið gegn Viðari Má Friðfinnssyni og
Veitingahúsinu Læk ehf. og á hendur eftirtöldum félögum til upptöku:
Eignarhaldsfélaginu Læk ehf, Artist ehf., Trucks ehf og X-menn ehf nú
gjaldþrota en málið var dómtekið 2. þ.m.
Málið er höfðað með ákæru héraðssaksóknara, dagsettri 13.
júní 2016, á hendur:
,,Viðari Má
Friðfinnssyni, kt. 000000-0000, Maríubaugi 69, Reykjavík
og Veitingahúsinu Læk ehf., kt. 000000-0000, Lækjargötu 6a, Reykjavík, fyrirsvarsmaður Viðar Már
Friðfinnsson, kt. 000000-0000
og jafnframt á hendur
eftirtöldum félögum til upptöku:
Eignarhaldsfélaginu Læk
ehf., kt. 000000-0000,
Maríubaugi 69,
Reykjavík,
fyrirsvarsmaður Viðar
Már Friðfinnsson,
Artist ehf., kt. 000000-0000,
Lækjargötu 6a,
Reykjavík,
fyrirsvarsmaður Viðar
Már Friðfinnsson,
Trucks ehf., kt. 000000-0000,
Lónsbraut 6,
Hafnarfirði,
fyrirsvarsmaður Viðar
Már Friðfinnsson
og
X-men ehf., kt. 000000-0000,
nú gjaldþrota,
Skemmuvegi 26,
Kópavogi,
skiptastjóri Einar
Sigurjónsson, hdl.
A.
Á hendur ákærða Viðari
Má Friðfinnssyni, sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður einkahlutafélagsins
Veitingahússins Lækjar, kt. 000000-0000, fyrir meiri háttar brot gegn skatta-
og bókhaldslögum með því að hafa:
1. Staðið skil á efnislega röngum
virðisaukaskattsskýrslum einkahlutafélagsins vegna allra uppgjörstímabila
rekstraráranna 2010 til og með 2013, og hafa með því vantalið
virðisaukaskattskylda veltu samtals að fjárhæð kr. 230.554.762 og
virðisaukaskatt sem innheimtur var í starfseminni framangreind uppgjörstímabil,
sem bar að standa ríkissjóði skil á, í samræmi við fyrirmæli IX. kafla laga nr.
50/1988, um virðisaukaskatt, samtals að fjárhæð kr. 52.655.427, sem
sundurliðast sem hér greinir:
Árið 2010
janúar – febrúar kr. (588.984)
mars – apríl kr. 147.794
maí - júní kr. 1.680.907
júlí – ágúst kr. 762.078
september – október kr. 5.175.654
nóvember – desember kr. 5.336.666
kr. 12.514.115
Árið 2011
janúar – febrúar kr. 1.101.071
mars – apríl kr. 1.284.917
maí - júní kr. 3.414.182
júlí – ágúst kr. 2.104.831
september – október kr. 4.037.083
nóvember – desember kr. 2.762.176
kr. 14.704.260
Árið 2012
janúar – febrúar kr. 94.849
mars – apríl kr. 2.081.338
maí - júní kr. 3.194.318
júlí – ágúst kr. 4.404.443
september – október kr. 2.851.602
nóvember – desember kr. 2.734.527
kr. 15.361.077
Árið 2013
janúar – febrúar kr. 832.705
mars – apríl kr. 2.503.021
maí - júní kr. 2.428.230
júlí – ágúst kr. 651.653
september – október kr. 3.244.035
nóvember – desember kr. 416.331
kr. 10.075.975
Samtals: kr. 52.655.427
2. Rangfært bókhald einkahlutafélagsins
Veitingahússins Lækjar, með því að vantelja tekjur þess, þannig að bókhaldið
gaf ranga mynd af viðskiptum og notkun fjármuna einkahlutafélagsins.
B.
Á hendur ákærða Viðari
Má fyrir meiriháttar skattalagabrot með því að hafa staðið skil á efnislega
röngum skattframtölum gjaldárin 2011 til og með 2014, vegna tekjuáranna 2010
til og með 2013, með því láta undir höfuð leggjast að telja fram á
skattframtölum sínum vegna fyrrgreindra ára, tekjur samtals að fjárhæð kr.
64.259.767, í formi innlagna viðskiptavina Veitahússins Lækjar ehf. inn á
persónulegan bankareikning ákærða, sem skattskyldar eru sem tekjur samkvæmt 1.
mgr. 1. tl. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003, sbr. einnig 19. og
21. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, en með því komst ákærði
hjá að greiða tekjuskatt og útsvar að fjárhæð kr. 28.054.423, sem sundurliðast
sem hér greinir:
Tekjuárið 2010:
Tekju- og útskattur:
Framtaldar tekjur kr. 1.152.000
Vantaldar tekjur kr. 22.085.960
Tekjuskattur,
skattprósenta 24,10% kr. 300.768
Útsvar, útsvarsprósenta
13,03% kr. 162.614
(Tekjur af stofni 0 –
2.400.000 kr.)
Tekjuskattur,
skattprósenta 27,0% kr. 1.458.000
Útsvar, útsvarsprósenta
13,03% kr. 703.618
(Tekjur af stofni
2.400.001-7.800.000 kr.)
Tekjuskattur,
skattprósenta 33,0% kr. 5.094.527
Útsvar, útsvarsprósenta
13,03% kr. 2.011.568
(Tekjur af stofni yfir
7.800.000 kr.)
Ónýttur
persónuafsláttur kr. 102.728
Vangreiddur
tekjuskattur og útsvar samtals: kr. 9.628.367
Tekjuárið 2011:
Tekju- og útskattur:
Framtaldar tekjur kr. 3.302.400
Vantaldar tekjur kr. 18.718.807
Tekjuskattur,
skattprósenta 22,9% kr. -
Útsvar, útsvarsprósenta
14,40% kr. -
(Tekjur af stofni
0-2.512.800 kr.)
Tekjuskattur,
skattprósenta 25,8% kr. 1.254.964
Útsvar, útsvarsprósenta
14,40% kr. 700.443
(Tekjur af stofni
2.512.801-8.166.600 kr.)
Tekjuskattur,
skattprósenta 31,8% kr. 4.405.765
Útsvar, útsvarsprósenta
14,40% kr. 1.995.065
(Tekjur af stofni yfir
8.166.600 kr.)
Ónýttur
persónuafsláttur kr. 0
Vangreiddur
tekjuskattur og útsvar samtals: kr. 8.356.237
Tekjuárið 2012:
Tekju- og útskattur:
Framtaldar tekjur kr. 1.424.640
Vantaldar tekjur kr.
16.705.000
Tekjuskattur,
skattprósenta 22,9% kr. 305.797
Útsvar, útsvarsprósenta
14,48% kr. 193.360
(Tekjur af stofni
0-2.760.000 kr.)
Tekjuskattur,
skattprósenta 25,8% kr. 1.468.639
Útsvar, útsvarsprósenta
14,48% kr. 824.258
(Tekjur af stofni
2.760.001-8.452.400 kr.)
Tekjuskattur,
skattprósenta 31,8% kr. 3.077.362
Útsvar, útsvarsprósenta
14,48% kr. 1.401.266
(Tekjur af stofni yfir
8.452.400 kr.)
Ónýttur
persónuafsláttur kr. 25.855
Vangreiddur
tekjuskattur og útsvar samtals: kr. 7.244.827
Tekjuárið 2013
Tekju- og útskattur:
Framtaldar tekjur kr. 3.892.320
Vantaldar tekjur kr. 6.750.000
Tekjuskattur,
skattprósenta 22,9% kr. -
Útsvar, útsvarsprósenta
14,48% kr. -
(Tekjur af stofni
0-2.897.702 kr.)
Tekjuskattur,
skattprósenta 25,8% kr. 1.285.301
Útsvar, útsvarsprósenta
14,48% kr. 721.361
(Tekjur af stofni
2.897.703-8.874.108 kr.)
Tekjuskattur, skattprósenta
31,8% kr. 562.291
Útsvar, útsvarsprósenta
14,48% kr. 256.039
(Tekjur af stofni yfir
8.874.108 kr.)
Ónýttur
persónuafsláttur kr. 0
Vangreiddur
tekjuskattur og útsvar samtals: kr. 2.824.992
Samtals vantaldar
tekjur: kr.
64.259.767
Samtals vangreiddur
tekjuskattur og útsvar: kr. 28.054.423
Framangreind brot
ákærða Viðars Más samkvæmt 1. tölulið A hluta og B hluta ákæru teljast varða
við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr.
39/1995, sbr. einnig:
a) 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um
virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005 að
því er varðar 1. tl. A hluta ákæru.
b) 1. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003 um
tekjuskatt, og 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaganna
að því er varðar B hluta ákæru.
Framangreind brot
ákærða Viðars Más samkvæmt 2. tölulið A hluta ákæru teljast varða við 2. mgr.
262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr.
einnig:
c) 3. tölul. 1. mgr. 37. gr., sbr. 36.
gr. laga nr. 145/1994 um bókhald, sbr. 1. gr. laga nr. 37/1995.
Framangreind brot
ákærða Veitingahússins Lækjar ehf. samkvæmt ákæru teljast varða við:
a) 8. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um
virðisaukaskatt, sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt,
sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005, að því er varðar 1.
tölulið A hluta ákæru.
b) 40. gr. laga nr. 145/1994, um
bókhald, sbr. 3. tölulið 1. mgr. 37. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 145/1994, um
bókhald, sbr. 1. gr. laga nr. 37/1995, að því er varðar 2. tölulið A hluta
ákæru.
Þess er krafist að
ákærðu verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
C.
Þess er krafist, með
vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari
breytingum, að eftirfarandi félög í eigu ákærða Viðars Más verði dæmd til að
sæta upptöku á eftirfarandi innistæðum á reikningum í Íslandsbanka hf. sem
lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á þann 28. október 2013. Á haldlagningardegi
var virði innistæðnanna kr. 6.279.400. Þann 2. júní 2016 var virði eignanna
samtals að fjárhæð kr. 7.817.928. Upptökukrafan tekur einnig til áfallinna
vaxta og verðmætaaukningar hinna haldlögðu verðmæta frá haldlagningardegi, til
upptökudags.
Aðili: Reikningur: Staða28.10.2013 Staða 02.06.2016
Veitingahúsið Lækur ehf.,
kt. 000000-0000 0513-26-0439 kr. 5.237.677 kr. 6.533.220
Trucks ehf.,
kt. 000000-0000 0513-26-7656 kr. 633.926 kr. 855.336
Artist ehf.,
kt. 000000-0000 0513-26-3691 kr. 70.331 kr. 73.275
Eignarhaldsfélagið Lækur ehf..
kt. 000000-0000 0513-26-5001 kr. 313.933 kr. 312.135
X-men ehf.,
kt. 000000-0000 0513-26-5202 kr. 23.533 kr. 43.962
Samtals: kr. 6.279.400 kr. 7.817.928
Þess er krafist, með
vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari
breytingum, að ákærði Veitingahúsið Lækur ehf. verði dæmt til að sæta upptöku á
eftirfarandi eignum, sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á, á
starfsstöð félagsins, Lækjargötu 6A, Reykjavík, þann 26. október 2013:
Muna nr. Tegund: Fjárhæð: Frekari lýsing:
385953 Fjármunir/peningaseðlar 150 dollarar uppgjör merkt 24.10.2013
385954 Fjármunir/peningaseðlar 13.500 kr.
340 dollarar
Þess er krafist, með
vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari
breytingum, að ákærði Viðar Már verði dæmdur til að sæta upptöku á eftirfarandi
eignum, sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á, á heimili hans,
Maríubaug 69, Reykjavík, þann 26. október 2013:
Muna nr. Tegund: Fjárhæð: Frekari lýsing:
385971 Fjármunir/peningaseðlar 2.000.000 kr.
385972 Fjármunir/peningaseðlar 1.970 dollarar erlend mynt
3.210
evrur
1.000
danskar kr.
5
pund
385973 Ýmsir skartgripir hringir, Rolex úr,
hálskeðjur og bindisnælur.
Þess er krafist, með
vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari
breytingum, að ákærði Viðar Már verði dæmdur til að sæta upptöku á eftirfarandi
eignum sem kyrrsettar voru þann 8. nóvember 2013, sbr. kyrrsetningargerð
Sýslumannsins í Reykjavík nr. K-33/2013:
Nr. ökutækis tegund
DA555 Mercedes
Benz A
TF413 Suzuki RM
KL0159 Merlo skotbómulyftari
Fasteignin Maríubaugur
69, 113 Reykjavík, fnr. 225-8332.
Hlutir í Artist ehf.,
kt. 000000-0000 og hlutir í Eignarhaldsfélaginu Læk ehf., kt. 000000-0000.
Þess er krafist, með
vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari
breytingum, að ákærði einkahlutafélagið Artista, sem er í eigu ákærða Viðars
Más, verði dæmt til að sæta upptöku á eftirfarandi eignum sem kyrrsettar voru
þann 8. nóvember 2013, sbr. kyrrsetningargerð Sýslumannsins í Reykjavík nr.
K-34/2013:
Nr. ökutækis tegund
MZ510 BMW 3
PM111 Cadillac
Fleetwood
NA411 Renault
Master
OEN29 Cevrolet Silverado 2500
KOX78 Lincoln Town Car
TN242 Bombardier Can-Am
TS457 Chevrolet Corvette
YG916 (T59) Ford Thunderbird
EK533(428) Cevrolet Blazer
Báturinn Haförn 1.
ER-6758
Þess er krafist, með
vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari
breytingum, að Eignarhaldsfélagið Lækur ehf., kt. 000000-0000, sem er í eigu
ákærða Viðars Más, verði dæmt til að sæta upptöku á eftirfarandi eignum sem
kyrrsettar voru þann 8. nóvember 2013, sbr. kyrrsetningargerð Sýslumannsins í
Reykjavík nr. K-35/2013:
Nr. ökutækis tegund
VX719 Scania R164
NH599 Scania R143M
6X4
YR069 Íslandsvagn
RU946 Iveco
AD340T44H
YB610 Scania P124
GA6X4NA 400
YU119 Langendorf
SKS HS 20/28
OU527 Festivagn PNO
Þess er krafist, með
vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari
breytingum, að Eignarhaldsfélagið Lækur ehf., kt. 000000-0000, sem er í eigu
ákærða Viðars Más verði dæmt til að sæta upptöku á fasteigninni Lónsbraut 6.
fnr. 224-3638, 225-9956 og 225-9957, Hafnarfirði, sem kyrrsett var þann 28. maí
2014, sbr. kyrrsetningargerð Sýslumannsins í Reykjavík nr. K-9/2014:
D.
Fjármálaráðherra fyrir
hönd ríkissjóðs krefst þess, með vísan til 2. mgr. 172. gr. sakamálalaga nr.
88/2008, að ákærði Veitingahúsið Lækur ehf. verði dæmt til að greiða bætur að
fjárhæð kr. 52.655.427.
Fjármálaráðherra fyrir
hönd ríkissjóðs krefst þess, með vísan til 2. mgr. 172. gr. sakamálalaga nr.
88/2008, að ákærði Viðar Már Friðfinnsson verði dæmdur til að greiða bætur að
fjárhæð kr. 28.054.423.“
Héraðssaksóknari
gaf hinn 6. september 2016 út svofellda framhaldsákæru á hendur:
„Viðari Má Friðfinnssyni, kt. 000000-0000,
Maríubaugi 69, Reykjavík
og
Veitingahúsinu Læk ehf., kt. 000000-0000,
Lækjargötu 6a, Reykjavík,
fyrirsvarsmaður Viðar Már Friðfinnsson, kt. 000000-0000
og jafnframt á hendur eftirtöldum félögum til upptöku:
Eignarhaldsfélaginu Læk ehf., kt. 000000-0000,
Maríubaugi 69, Reykjavík,
fyrirsvarsmaður Viðar Már Friðfinnsson,
Artist ehf., kt. 000000-0000,
Lækjargötu 6a, Reykjavík,
fyrirsvarsmaður Viðar Már Friðfinnsson,
Trucks ehf., kt. 000000-0000,
Lónsbraut 6, Hafnarfirði,
fyrirsvarsmaður Viðar Már Friðfinnsson
skiptastjóri Pétur
Örn Sverrisson, hrl.
og
X-men ehf., kt. 000000-0000, nú gjaldþrota,
Skemmuvegi 26, Kópavogi,
skiptastjóri Einar Sigurjónsson, hdl.
Bifreiðarnar OEN29
Cevrolet Silverado 2500 og KOX78 Lincoln Town Car í eigu Artista ehf. voru
seldar eftir útgáfu ákæru, að beiðni ákærða Viðars Má Friðfinnssonar eiganda
félagsins. Á c lið ákæru verða því gerðar svofelldar breytingar vegna
kyrrsetningargerðar nr. K-34/2013:
Þess er krafist, með
vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari
breytingum, að ákærði einkahlutafélagið Artista, sem er í eigu ákærða Viðars
Más, verði dæmt til að sæta upptöku á eftirfarandi eignum sem kyrrsettar voru
þann 8. nóvember 2013, sbr. kyrrsetningargerð Sýslumannsins í Reykjavík nr.
K-34/2013:
Nr. ökutækis tegund
MZ510 BMW 3
PM111 Cadillac
Fleetwood
NA411 Renault
Master
OEN29 Cevrolet Silverado 2500
KOX78 Lincoln Town Car
TN242 Bombardier Can-Am
TS457 Chevrolet Corvette
YG916 (T59) Ford Thunderbird
EK533(428) Cevrolet Blazer
Báturinn Haförn 1.
RE-6758
Þess er krafist, með
vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari
breytingum, að ákærði einkahlutafélagið Artista, sem er í eigu ákærða Viðars
Más, verði dæmt til að sæta upptöku á innistæðum á bankareikningum sem embætti héraðssaksóknara
hefur stofnað í Arion banka hf., nr. 0301-13-112718 og nr. 0301-13-303998.
Innistæðurnar eru andvirði sölu á bifreiðunum OEN29 Cevrolet Silverado 2500 og
KOX78 Lincoln Town Car. Á haldlagningardegi var virði innistæðnanna kr.
1.076.018 á bankareikningi nr. 0301-13-112718, söluhagnaður OEN29 og kr.
209.615 á bankareikningi nr. 0301-13-303998, söluhagnaður KOX78. Upptökukrafan
tekur einnig til áfallinna vaxta og verðmætaaukningar hinna haldlögðu verðmæta
frá haldlagningardegi, til upptökudags.“
Hinn
11. apríl 2017 gaf héraðssaksóknari út svofellda framhaldsákæru á hendur:
„Viðari Má Friðfinnssyni, kt. 000000-0000,
Maríubaugi 69, Reykjavík
og
Veitingahúsinu Læk ehf., kt. 000000-0000,
Lækjargötu 6a, Reykjavík,
fyrirsvarsmaður Viðar Már Friðfinnsson, kt. 000000-0000
og jafnframt á hendur eftirtöldum félögum til upptöku:
Eignarhaldsfélaginu Læk ehf., kt. 000000-0000,
Maríubaugi 69, Reykjavík,
fyrirsvarsmaður Viðar Már Friðfinnsson,
Artist ehf., kt. 000000-0000,
Lækjargötu 6a, Reykjavík,
fyrirsvarsmaður Viðar Már Friðfinnsson,
Trucks ehf., kt. 000000-0000,
Lónsbraut 6, Hafnarfirði,
skiptastjóri Pétur Örn Sverrisson, hrl.
og
X-men ehf., kt. 000000-0000, nú gjaldþrota,
Skemmuvegi 26, Kópavogi,
skiptastjóri Einar Sigurjónsson, hdl.
Fasteignin Lónsbraut 6
var seld á nauðungarsölu þann 6. apríl 2016. Endanleg úthlutun söluverðs
eignarinnar var greitt 7. október 2016, þ.e. eftir útgáfu ákæru. Bifreiðin
RU946 Iveco AD340T44H í eigu Eignarhaldfélagsins Læk ehf., var seld eftir
útgáfu ákæru, að beiðni ákærða Viðars Má Friðfinnssonar eiganda félagsins.
Á c lið ákæru verða því
gerðar svofelldar breytingar vegna kyrrsetningargerða nr. K-9/2014 og
K-35/2013:
Þess er krafist, með
vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari
breytingum, að Eignarhaldsfélagið Lækur ehf., kt. 000000-0000, sem er í eigu
ákærða Viðars Más verði dæmt til að sæta upptöku á fasteigninni Lónsbraut 6.
fnr. 224-3638, 225-9956 og 225-9957, Hafnarfirði, sem kyrrsett var þann 28. maí
2014, sbr. kyrrsetningargerð Sýslumannsins í Reykjavík nr. K-9/2014 á
innistæðum á bankareikningum sem embætti héraðssaksóknara hefur stofnað í Arion
banka hf., nr. 0301-13-304155 og 0301-13-304197. Innistæðurnar eru söluhagnaður
vegna Lónsbraut 6, 0127, fnr. 225-9956 og vegna Lónsbraut 6, 0128, fnr.
225-9957. Á haldlagningardegi var virði innistæðanna kr. 7.712.513 á
bankareikningi nr. 0301-13-304155, söluhagnaður vegna fnr. 225-9956 og kr.
20.980.431 á bankareikningi nr. 0301-13-304197, söluhagnaður vegna fnr.
225-9957. Upptökukrafan tekur einnig til áfallinna vaxta og verðmætaaukningar
hinna haldlögðu verðmæta frá haldlagningardegi, til upptökudags.
Þess er krafist, með
vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari
breytingum, að Eignarhaldsfélagið Lækur ehf., kt. 000000-0000, sem er í eigu
ákærða Viðars Más, verði dæmt til að sæta upptöku á eftirfarandi eignum sem
kyrrsettar voru þann 8. nóvember 2013, sbr. kyrrsetningargerð Sýslumannsins í
Reykjavík nr. K-35/2013:
Nr. ökutækis tegund
VX719 Scania R164
NH599 Scania R143M
6X4
YR069 Íslandsvagn
RU946 Iveco
AD340T44H
YB610 Scania P124
GA6X4NA 400
YU119 Langendorf
SKS HS 20/28
OU527 Festivagn
PNO
Þess er krafist, með
vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari
breytingum, að ákærði Eignarhaldsfélagið Lækur ehf., sem er í eigu ákærða
Viðars Más, verði dæmt til að sæta upptöku á innistæðu á bankareikningi sem
embætti héraðssaksóknara hefur stofnað í Arion banka hf., nr. 0301-13-111619.
Innistæðan er andvirði sölu á bifreiðinni RU946. Á haldlagningardegi var virði
innistæðunnar kr. 339.519. Upptökukrafan tekur einnig til áfallinna vaxta og
verðmætaaukningar hinna haldlögðu verðmæta frá haldlagningardegi, til upptökudags.“
Verjandi ákærða krefst aðallega frávísunar málsins, til
vara sýknu og að bótakröfum verði vísað frá dómi.Til þrautavara er krafsist
vægustu refsingar sem lög leyfa og að sýknað verði af bótakröfum en til vara að
þær sæti lækkun. Þess er krafist að upptökukröfum verði hafnað. Málsvarnarlauna
er krafist úr ríkissjóði samkvæmt tímaskýrslu.
Skiptastjóri Trucks ehf. krefst þess að upptökukröfu sem
beinist að þrotabúi félagsins verði hafnað og málskostnaður dæmdur að mati
dómsins.
Fyrir liggur krafa Sveins Andra Sveinssonar
hæstaréttarlögmanns um greiðslu málsvarnarlauna vegna vinnu fyrir ákærða undir
rannsókn málsins.
Tekin var skýrsla af ákærða hjá lögreglunni 27. maí 2016
þar sem hann lýsti afstöðu sinni til sakarefnisins.
Nú verður rakinn
framburður ákærða og vitnisburður fyrir dómi
Ákærði neitar sök og hafnar bótakröfum og upptökukröfum.
Verjandi ákærða krefst frávísunar málsins og reisti þá
kröfu á því að rannsókn málsins væri ófullnægjandi auk þess að telja aðra galla
sem hann taldi á málatilbúnaði ákæruvaldsins.
Ákæruvaldið andmælti frávísunarkröfunni.
Það er mat dómsins að engin haldbær rök hafi verið færð
fram sem leiði til frávísunar málsins í heild eins og verjandinn krefst.
Frávísunarkröfu hans er því hafnað.
A 1
Ákærði kveðst hafa grunnskólamenntun og hafa starfað við
bílaviðgerðir. Á árunum 2010 til 2013 rak hann, auk bílaviðgerða,
veitingastaðinn Strawberry´s í gegnum einkahlutafélagið Læk en ákærði kvaðst
hafa verið framkvæmdastjóri, prókúruhafi og stjórnarformaður félagsins þann
tíma sem ákæran tekur til. Hann kvað félagið hafa verið kampavínsklúbb og lýsti
hann rekstri þess og klúbbsins. Hann kvaðst ekki hafa haft mikla aðkomu að
daglegum rekstri félagsins. Hann hefði reynt að sjá um félagið en hann hefði
haft starfsmenn sem önnuðust innkaup o.fl. Þá hafði hann haft starfsmann til að
annast bókhald og allt skjallegt er tengdist félaginu. Spurður um ábyrgð á
skattskilum félagsins kvaðst ákærði hafa heyrt að lögum samkvæmt hvíldi
ábyrgðin á honum en hann kvað A hafa verið bókara hjá félaginu og hann hefði
annast allt sem laut að þessu en ákærði hefði komið gögnum til hans.
Borin var undir ákærða leiðréttingarskýrsla
virðisaukaskatts og rafrænar skilagreinar allra greiðslutímabila rekstrarársins
2010. Ákærði kvað A hafa útbúið öll þessi gögn en ákærði sjálfur ekki útbúið
nein skjöl.
Borin voru undir ákærða leiðréttingarskýrsla
virðisaukaskatts og rafrænar skilagreinar allra greiðslutímabila rekstrarársins
2011. Ákærði kvað hið sama eiga við um þessa skýrslur. Ákærði kvað A hafa
annast þessa skýrslugerð en ákærði komið öllum gögnum fyrirtækisins. Ákærði
kveðst ekki vita hvaða gögn þetta voru þar sem hann hafi ekki fengið að sjá
gögn sem lagt var hald á undir rannsókninni.
Ákærði kvað sömu sjónarmið og svör eiga við rafrænar
virðisaukaskattsskýrslur vegna allra greiðslutímabila rekstrarársins 2012. A
hafi annast allt er að þessu laut.
Bornar voru undir ákærða rafrænar virðisaukaskýrslur
vegna fjögurra fyrstu greiðslutímabila rekstrarársins 2013 og virðisaukaskattsskýrslur
vegna tveggja síðustu greiðslutímabila þess árs. Ákærði kvað hið sama eiga við
og vísaði í því sambandi til A. Skilað var inn núllskýrslu vegna tveggja
síðustu greiðslutímabila ársins 2013. Ákærði kvaðst hafa undirritað skýrslurnar
en A hefði skilað þeim inn fyrir hönd ákærða.
Meðal gagna málsins eru yfirlit yfir innheimtan
skattskyldan virðisaukaskatt veitingahússins Lækjar ehf. vegna rekstraráranna
2010 til og með 2013. Þar kemur fram að vangoldinn virðisaukaskattur nemur þeim
fjárhæðum sem í ákæru greinir. Spurður um afstöðu til yfirlitanna kveðst ákærði
ekki hafa þekkingu til að fara yfir þetta. Þess vegna hefði hann haft
endurskoðanda til að vinna þessi verk.
Þá liggja fyrir yfirlit um gögn sem skattskyld velta og
virðisaukaskattur er byggður á vegna greiðslutímabilanna sem um ræðir. Ákærði
kvað hið sama eiga við um þetta, hann hafi ekki annast gerð virðisaukaskattsskýrslna
og kvaðst enn vísa á A.
Niðurstaða
ákæruliðar A 1
Ákærði neitar sök á þeirri forsendu að hann hafi falið
öðrum að sjá um uppgjör virðisaukaskatts og gerð virðisaukaskattsskýrslna.
Ákærði var framkvæmdastjóri og stjórnarmaður
einkahlutafélagsins Veitingahússins Lækjar á þeim tíma sem ákæran tekur til.
Samkvæmt 44. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög bar ákærða að sjá til
þess að starfsemi félagsins væri í réttu horfi og að tryggja að félagið innti
af hendi lögboðinn virðisaukaskatt og skilaði réttum virðisaukaskattsskýrslum
eins og lög áskilja. Ákærði getur ekki varpað þessari ábyrgð á aðra.
Sannað er með gögnum sem rakin voru að framan og með
öðrum gögnum málsins að ákærði hafi gerst sekur um háttsemina sem í þessum
ákærulið greinir og eru brot ákærðu rétt færð til refsákvæða í ákærunni
A 2
Ákærði kvaðst hafa safnað saman bókhaldsgögnum félagsins
og komið þeim til A. Þetta hafi ákærði gert jafnóðum og afhent A gögnin.
Spurður um það hvort bókhald félagsins hafi verið fært, kvaðst ákærði ekki muna
nákvæmlega hvernig þetta var og hann viti ekki hvaða gögn voru á bak við það sem
hann kom til A en ákærði telji að hann hafi fengið fullnægjandi gögn til færslu
bókhaldsins. Hann kvaðst vísa á A varðandi færslu þess.
Niðurstaða
ákæruliðar A 2
Ákærða er gefið að sök að hafa rangfært bókhald
einkahlutafélagsins Veitingahússins Lækjar. Ekki kemur fram í ákærunni hvaða tímabil
eða ár átt er við. Þessi efnislýsing í ákæru er ekki í samræmi við c-lið 1.
mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 og er óhjákvæmilegt að vísa þessum ákærulið frá
dómi.
B
Skattframtöl ákærða vegna gjaldaáranna 2011 til og með
2014 vegna tekjuáranna 2010 til og með 2013 liggja fyrir meðal gagna málsins og
voru þau borin undir ákærða. Hann kannaðist ekki við þau og vísaði á A sem hefði
annast gerð þeirra fyrir sig. Ákærði kveðst ekki muna nú hvaða gögn hann
afhenti A vegna þessa en ákærði hefði skilað öllum gögnum til A vegna þessa.
Ákærði kvaðst ekki geta svarað því hvort framtölin gæfu rétta mynd af tekjum
hans tekjuárin sem um ræðir.
Meðal gagna málsins eru yfirlit sem sýna ætlaðar
vanframtaldar launatekjur ákærða fyrir tekjuárin 2010 til og með 2013, samtals
að fjárhæð 64.259.767 krónur sem sundurliðast á árin eins og lýst er í
ákærunni. Þá liggja fyrir gögn og yfirlit um það hvaðan þessar ætluðu
vanframtöldu tekjur koma. Spurður um athugasemdir við þetta kvaðst ákærði ekki
muna þetta. Fyrir liggja yfirlit um innlagnir viðskiptavina Strawberry´s inn á
bankareikning ákærða sem samtals nema fjárhæðinni sem rakin var að framan.
Ákærði kvað þetta geta staðist. Hann kvað þessar fjárhæðir ekki allar hafa
runnið til sín. Greiðslurnar hefðu að meira eða minna leyti farið aftur í
gegnum rekstur klúbbsins og þar með í verktakagreiðslur til „stelpnanna“ eins
og ákærði bar.
Ákærði var spurður um fasteignina Maríubaug 69, Reykjavík
og hvernig hann eignaðist hana. Ákærði kvaðst, ásamt [...], hafa keypt fasteign
í Glósölum sem þau seldu á árinu 2009, að hann taldi, með ágætis hagnaði og
hafði hann fengið peninga út úr þeirri sölu sem hann notaði til að kaupa
fasteignina að Maríubaug 69, auk þess sem kaupin voru fjármögnuð með láni sem
enn hvíli á eigninni. Engir fjármunir hefðu komið úr veitingarekstrinum til að
fjármagna íbúðarkaupin eða önnur fasteignakaup eða bílakaup ákærða.
Fasteign að Lónsbraut í Hafnarfirði hafi verið keypt með
lánum að sögn ákærða.
Ákærði kvaðst hafa á sínum tíma hafa keypt bíl frá Bandaríkjunum,
gert bílinn upp og komið í umferð en hann sé skráður á félagið Artist. Hann
kvað bílar sem hafa verið kyrrsettir og krafist er upptöku á m.a. í eigu
Artist. Bílarnir hafi verið í slæmu ástandi er ákærði keypti þá en gerði síðan
upp. Þeir hafi nú staðið ónotaðir í 3 ½ ár og séu að verða ónýtir.
Ákærði kvað eignarhaldsfélagið Læk hafa átt vörubíla sem
voru druslur að sögn ákærða. Hann gerði bílana upp en verðmætið minnki með
hverjum deginum og enginn vilji kaupa þá.
Ákærði kvað Trucks ehf. hafa verið rekstrarfélag fyrir
vörubíla. Tekjur félagsins komu aldrei frá veitingahúsinu Læk eða frá rekstri
tengdum því félagi. Það hafi verið óskyld mál.
Fjögur vitni báru fyrir dómi og hjá lögreglu um að hafa greitt
inn á persónulegan reikning ákærða vegna viðskipta við Veitingahúsið Læk ehf.
Nema þessar greiðslur alls 64.259.767 krónum eins og greinir í ákærunni.
Eins og rakið var liggja frammi yfirlit og gögn um
innlagnir viðskiptavina Strawberry´s inn á bankareikning ákærða sem samtals
nemur fjárhæðinni sem rakin var að framan og fyrir dómi kvað ákærði þetta geta staðist.
Vitnið Akvaðst hafa séð um bókhald fyrir félög ákærða
Viðars Más á árunum 2010 til 2013, m.a. veitingahúsið Læk. Aðspurður hvort
bókhaldið hefði verið fært fyrir veitingahúsið Læk vegna rekstrarársins 2010
til og með 2013 kvað vitnið það hafa verið gert að hluta. Gjaldhliðin hafi
verið færð en tekjuhliðin hafi ekki verið færð að fullu. Skýringin sé sú að
gögnin sem vitnið fékk frá ákærða Viðari Má og veitingahúsinu hafi verið óskýr
og ekki fullnægjandi og því ekki unnt að færa tekjuhliðina en hann hefði fengið
þær skýringar að einhver vandamál væru með hana. Hann fékk gögn í slumpum en
ekki jafnóðum. Hann hafi geymt gögnin á skrifstofu sinni en á tekjuhliðinni
fékk hann aldrei fullnægjandi skýringar og viti ekki hvernig varðveislu þeirra
gagna var háttað. A kvaðst hafa gengið á eftir frekari gögnum en framtölum hafi
ekki verið skilað eftir rekstrarárið 2010 eða 2011, að hann taldi, en það var
síðasta framtalið sem hann skilaði. Framtölin fyrir önnur ár fóru ekki inn
vegna ófullnægjandi gagna. Vitnið kvaðst hafa fengið fjárstreymisuppgjör sem
hafi verið gögn sem hann fékk afhent en hann hafi alltaf fengið þær skýringar
hjá ákærða Viðari Má og starfsmönnum hans að eitthvað væri að þessum gögnum og
að ekki væri byggjandi á þeim. Hann hefði því ekki getað notað þau sem
bókhaldsgögn þar sem þau væru ekki í lagi.
Meðal gagna málsins eru innsend skattframtöl
veitingahússins Lækjar rekstrarárin 2010 og 2011 og leiðréttingarskýrslur.
Vitnið kvaðst hafa unnið þessi skattframtöl og hann hafi talið sig hafa fengið
fullnægjandi gögn og skriflega yfirlýsingu frá ákærða Viðari Má til að vinna þau.
Hið sama eigi við um leiðréttingarskýrslu vegna rekstrarársins 2010 og sams konar
skýrslu vegna rekstrarársins 2011. Vitnið taldi þannig að framtölin gæfu rétta
mynd af tekjum og gjöldum félagsins miðað við þau gögn og skýringar sem hann
fékk og hafði undir höndum. Hann hafi borið skattframtölin og
leiðréttingarskýrslurnar undir ákærða Viðar Má áður en þeim var skilað og ákærði
því vitað niðurstöðuna.
Fyrir liggja rafrænar virðisaukaskattsskýrslur vegna
allra greiðslutímabila ársins 2012 og fyrstu fjögur greiðslutímabil ársins
2013. A kvaðst hafa útbúið skýrslurnar og skilað inn. Þessar skýrslur hafi
verið unnar á grundvelli gagnanna sem fjallað var um að ofan, þ.e. gjöld
félagsins hafi verið færð en um tekjur hafi verið munnlegar upplýsingar. Þá
liggja fyrir núllskýrslur vegna tveggja síðustu greiðslutímabila ársins 2013. A
kvaðst hafa útbúið skýrslurnar en ekki skilað þeim heldur afhent ákærða Viðari
Má þær. Skýrslurnar voru útbúnar eftir lokun starfseminnar.
Vitnið A kvaðst hafa unnið persónuleg skattframtöl ákærða
Viðars Más fyrir tekjuárin 2010 til og með 2013. Árið 2010 voru tekjur frá Reisn
1.200.000 krónur. Þetta hafi verið unnið út frá bókfærðum tekjum hjá félaginu
en hann hafi ekki fengið upplýsingar um frekari tekjur ákærða. Hið sama eigi
við um hin tekjuárin sem eftir standa. Hann hafi ekki haft neinar upplýsingar
um aðrar tekjur ákærða þau ár. Hann hafi farið yfir skattframtölin með ákærða
Viðari Má áður en þeim var skilað.
Niðurstaða ákæruliðar
B
Ákærði neitar sök. Sannað er með framburði ákærða og
vitnisburði þeirra sem lögðu inn á persónulegan bankareikning ákærða og með
gögnum þar að lútandi að lagðar voru inn á persónulegan bankareikning ákærða samtals
64.259.767 krónur sem sundurliðast eins og lýst er í ákærunni. Ákærði taldi
þessar tekjur ekki fram á skattframtölum sínum vegna tekjuáranna 2010 til og
með 2013 eins og lög áskilja en tekjurnar voru skattskyldar samkvæmt þeim
lagaákvæðum sem vísað er til í ákærunni. Með þessu komst ákærði hjá því að
greiða tekjuskatt og útsvar að fjárhæð 28.054.423 krónur.
Brot ákærða samkvæmt þessum ákærulið eru rétt færð til
refsiákvæða í ákærunni.
Ákærði hefur ekki áður gerst brotlegur við lög. Refsing
hans er ákvörðuð með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga. Mjög langur
tími er liðinn frá því ákærði framdi broti sín. Að öllu þessu virtu þykir refsing
ákærða hæfilega ákvörðuð fangelsi í 12 mánuði. Langur tími er liðinn frá
framningu brotanna og verður ákærði ekki sakaður um dráttinn á málinu. Þykir
því rétt að skilorðsbinda refsivistina eins og í dómsorði greinir.
Auk refsivistar ber að dæma ákærða og Veitingahúsið Læk
ehf. til greiðslu sektar. Eins og sakarefninu er háttað þykir sekt ákærða
Viðars Más hæfilega ákvörðuð 242.000.000 króna þar af greiði hann 158.000.000
króna óskipt með ákærða Veitingahúsinu Læk ehf.
Undir dómsmeðferð málsins var fallið frá upptökukröfunni
að því er varðar ýmsa skartgripi, hringi, Rolex úr, hálskeðjur og bindinælur.
Með vísan til 69. gr. og 69. gr. b almennra hegningarlaga
eru uppfyllt skilyrði laganna til að dæma upptækar til ríkissjóðs eftirtaldar
eignir Veitingahússins Lækjar ehf.: Innstæðu á bakareikningi 0513-26-0439, 490
dollara og 13.500 krónur.
Aðrar eignir sem krafist er að dæmdar verði upptækar
varða ekki Veitingahúsið Læk ehf. Eins og rakið var var lagt hald á þessi verðmæti
undir rannsókn málsins hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu þar sem til rannsóknar
voru önnur brot en þau sem ákært er fyrir. Í framangreindu bréfi lögreglustjórans
á höfuðborgarsvæðinu, dags. 12. janúar 2016, segir að meðal sakarefna sem
rannsökuð voru hafi verið brot gegn 206. gr. almennra hegningarlaga og peningaþvættisákvæði
264. gr. almennra hegningarlaga. Í rannsóknargögnum þessa máls er ekkert um þetta
enda ekki ákært fyrir brot gegn þessum lagaákvæðum. Gögn um hina haldlögðu og
kyrrsettu muni, sem nú er krafist upptöku á, fylgdu með málinu er það var sent
frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu til héraðssaksóknara. Þar fór því
engin rannsókn fram á því hvort hinir haldlögðu munir tengdust eitthvað brotum ákærða
sem hér er ákært vegna. Þá liggur ekkert fyrir um það hvenær ákærði Viðar eða
félögin sem um ræðir eignuðust þessi verðmæti svo sem hvort það var áður en ákærði
framdi brotin sem hann er nú sakfelldur fyrir. Ákærði hefur andmælt
upptökukröfunum og hefur hann m.a. sýnt fram á það hvernig hann eignaðist
fasteignina að Maríubaug 69 og verður ekki betur séð en að það hafi ekkert með
sakarefni málsins að gera. Ákærði hefur skýrt frá því að þessar eignir tengist
ekkert rekstri Veitingahússins Lækjar ehf. eins og rakið var hvorki varðaandi
fasteignina Maríubaugur 69 né og bifreiðar og annað lausafé sem hér um ræðir. Í
greinargerð með lagafrumvarpinu sem varð að lögum 149/2009 segir að tilgangur
ákvæðisins sem varð að 69 gr. b sé einkum að ná til einstaklinga sem hafi
lifibrauð sitt eða verulegar tekjur af brotastarfsemi og megi gera ráð fyrir
því að ákvæðinu verði aðallega beitt vegna innflutnings ávana- og fíkniefna,
auðgunarbrota og annarrar skipulegrar brotastarfsemi. Í samræmi við þetta er óþekkt
að lagt sé hald á verðmæti eins og þau sem hér um ræðir við rannsókn brota eins
og þeirra sem um getur í málinu. Skýringa á hinum haldlögðu munum er að leita í
því að við rannsókn málsins hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu var til
rannsóknar allt annað sakarefni eins og rakið var og kann við þær aðstæður að
hafa verið eðlilegt að leggja hald á þessa muni. Að þessu virtu og að virtum
tilganginum með setningu laga nr. 149/2009 sem breyttu almenum hengingarlögum
og varða upptöku, hryðjuverk, skipulagða brotastarfsemi, mansal og
peningaþvætti, er það mat dómsins, að ekki séu uppfyllt lagaskilyrði til að
dæma önnur verðmæti upptæk en þau sem nefnd voru og sem voru eign Veitingahússins
Lækjar ehf. Ber samkvæmt þessu að sýkna ákærða og félögin af öðrum upptökukröfum.
Í 173. gr. laga nr. 88/208, um meðferð sakamála, er því
lýst hvað skuli koma fram í einkaréttarkröfu. Skaðabótakrafa fjármálaráðherra,
fyrir hönd ríkissjóðs, uppfyllir ekki skilyrði lagagreinarinnar og ber að vísa
henni frá dómi.
Ríkissjóður greiði þrotabúi Trucks ehf. 250.000 krónur í
mákostnað.
Eins og rakið var hófst rannsókn á hendur ákærða og
Veitingahúsinu Læk ehf. í október 2013. Ráða má af gögnum málsins að mestur
hluti vinnu verjenda hefur verið vegna við það er tengdist rannsókn lögreglustjórans
á höfuðborgarsvæðinu en fyrir liggur að mikill tími hefur farið í mál þetta. Með
hliðsjón af þessu greiði ákærðu óskipt 1/3 hluta af 13.828.480 króna
málsvarnarlaunum Páls Kristjánssonar héraðsdómslögmanns á móti 2/3 hlutum sem
greiðast úr ríkissjóði. Ákærðu og ríkissjóður greiði í sömu hlutföllum
1.115.070 króna málsvarnarlaun Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns
vegna vinnu hans undir rannsókn málsins Tekið hefur verið tillit til
virðisaukaskatts við ákvörðun lögmannsþóknunar.
Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknarfulltrúi flutti
málið fyrir ákæruvaldið.
Dóminn kveða upp héraðsdómararnir Guðjón St. Marteinsson,
sem dómsformaður, og Arngrímur Ísberg og Lárus Finnbogason, löggiltur
endurskoðandi.
Dómsorð:
Ákærulið A 2 er vísað frá dómi.
Ákærði, Viðar Már Friðfinnsson, sæti fangelsi í 12 mánuði
en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið í 2 ár frá birtingu
dómsins að telja og falli refsingin niður að þeim tíma liðnum haldi ákærði
almennt skilorð 57.gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr.
22/1955.
Ákærði Viðar Már greiði 242.000.000 króna sekt í
ríkissjóð þar af greiði hann 158.000.000 krónur af sektinni óskipt með ákærða
Veitingahúsinu Læk ehf. Ákærði Viðar Már sæti fangelsi í 12 mánuði í stað
sektarinnar verði hún ekki greidd inna fjögurra vikna frá uppsögu dómsins að
telja.
Veitingahúsið Lækur ehf. sæti upptöku á: Innstæðu á
bakareikningi 0513-26-0439, 490 dollurum og 13.500 krónum.
Sýknað er af öðrum upptökukröfum.
Skaðabótakröfum fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs er
vísað frá dómi.
Ríkissjóður greiði þrotabúi Trucks ehf. 250.000 krónur í
mákostnað.
Ákærðu greiði óskipt 1/3 hluta af 13.828.480 króna
málsvarnarlaunum Páls Kristjánssonar héraðsdómslögmanns á móti 2/3 hlutum sem
greiðast úr ríkissjóði. Ákærðu og ríkissjóður greiði í sömu hlutföllum
1.115.070 króna málsvarnarlaun Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns.
Guðjón St.
Marteinsson
Arngrímur Ísberg
Lárus Finnbogason