• Lykilorð:
  • Hegningarauki
  • Skilorð
  • Þjófnaður

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Norðurlands eystra 15. mars 2019 í máli nr. S-39/2019:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

Herði Eydal

 

Mál þetta, sem var dómtekið 12. mars sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 13. febrúar 2019, á hendur Herði Eydal, [...]

 

„fyrir þjófnað, með því að hafa laugardaginn 3. júlí 2018, stolið í verslun [...], leikföngum (leikfangabílum, leikfangagröfum og rútu) samtals að verðmæti 18.941 krónur.

Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Þess er krafist á að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

 

Ákærði sótti ekki þing, þrátt fyrir að hafa verið birt fyrirkall. Þar var þess getið að málið kynni að verða dæmt að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 155. gr. laga nr. 88/2008. Er því heimilt samkvæmt 1. mgr. 161. gr. sömu laga með áorðnum breytingum að leggja dóm á málið að ákærða fjarverandi, enda varðar brot ekki þyngri viðurlögum en þar er áskilið í a-lið og framlögð gögn verða talin nægjanleg til sakfellingar. Verður ákærði sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til refsiákvæða.

Þann 9. júlí 2018 var ákærði dæmdur fyrir þjófnað, í 30 daga fangelsi en fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Það brot sem hann er nú sakfelldur fyrir framdi hann áður en sá dómur var kveðinn upp og ber því nú að dæma hegningarauka er samsvari þeirri þyngingu refsingarinnar sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin í fyrra málinu, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þar sem refsing samkvæmt dóminum frá 9. júlí sl. var bundin skilorði verður sú refsing tekin upp og honum gerð refsing í einu lagi fyrir bæði brotin eftir reglum 60. gr. almennra hegningarlaga. Þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga. Þar sem um hegningarauka er að ræða verður fullnusta refsingarinnar enn bundin skilorði.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Arnbjörg Sigurðardóttir, settur héraðsdómari, kveður upp dóminn.

 


D Ó M S O R Ð :

 

Ákærði, Hörður Eydal, sæti fangelsi í 60 daga, en fresta skal fullnustu refsingar­innar og falli hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.