• Lykilorð:
  • Brot gegn valdstjórninni
  • Skilorðsbundnir dómar
  • Skilorð

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Norðurlands eystra fimmtudaginn 12. apríl 2018, í máli

nr. S-52/2018:

Ákæruvaldið

(Pétur Hrafn Hafstein saksóknarfulltrúi)

gegn

Emblu Nótt Anderson

 

Mál þetta, sem var dómtekið í dag, höfðaði héraðssaksóknari hér fyrir dómi þann 22. mars sl. með ákæru á hendur Emblu Nótt Anderson, kt. 000000-0000, …, …;

„fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa að kvöldi mánudagsins 22. maí 2017, á lögreglustöðinni á Akureyri, er verið að færa ákærðu í fangaklefa, sparkað aftur fyrir sig í hægri fótlegg lögreglumannsins A, sem þar var við skyldustörf, og hrækt á hana en hrákinn fór í andlit og í munn hennar.

Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakar­kostnaðar.“

 

Ákærða sótti ekki þing, þrátt fyrir að hafa verið birt fyrirkall. Þar var þess getið að málið kynni að verða dæmt að henni fjarstaddri, sbr. 1. mgr. 155. gr. laga nr. 88/2008. Er því heimilt samkvæmt 1. mgr. 161. gr. sömu laga með áorðnum breytingum að leggja dóm á málið að ákærðu fjarverandi, enda varðar brot ekki þyngri viðurlögum en þar er áskilið í a-lið og framlögð gögn verða talin nægjanleg til sakfellingar. Verður ákærða sakfelld fyrir þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til refsiákvæðis.

 

Ákærða hefur ekki sætt refsingum samkvæmt sakavottorði. Refsing hennar ákveðst fangelsi í tvo mánuði, skilorðsbundið eins og greinir í dómsorði.

 

Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson dómstjóri.

 

D Ó M S O R Ð :

Ákærða, Embla Nótt Anderson, sæti fangelsi í tvo mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum.