- Játningarmál
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjaness þriðjudaginn
30. apríl 2019 í máli nr. S-116/2019:
Ákæruvaldið
(Alda Hrönn Jóhannsdóttir
aðstoðarsaksóknari)
gegn
Victor Yinusa
(Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)
Mál þetta, sem var tekið til dóms 3. apríl sl., höfðaði
lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 18. febrúar 2019, á hendur Victor
Yinusa, fæddum [...], nígerískum ríkisborgara;
,,fyrir misnotkun skjals, með því að hafa, sunnudaginn 2.
desember 2018, framvísað við landamæragæslu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, í
blekkingarskyni, er hann var á leið til Montreal, Kanada, með flugi [...],
bandarísku vegabréfi, ánöfnuðu [...], fd. 03.09.1973, nr. [...] með gildistíma 20.07.2015
til 19.07.2025.
Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 157. gr.
almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og
til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög
leyfa. Þá gerir skipaður verjandi kröfu um hæfilega þóknun sér til handa vegna
starfa á rannsóknarstigi og fyrir dómi auk ferðakostnaðar.
Við
þingfestingu máls þessa játaði ákærði brot sitt án undandráttar. Játning ákærða
fær stoð í gögnum málsins. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur
um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð
til refsiákvæða. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um
meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er
sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um
lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.
Sakavottorð
ákærða liggur ekki frammi í málinu. Engra gagna nýtur við um að ákærði hafi
áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Verður við ákvörðun refsingar tekið
mið af þeirri staðreynd, sem og skýlausri játningu ákærða.
Af gögnum málsins verður ekki ráðið að
ákærði geti talist hafa stöðu flóttamanns. Eins og málið liggur fyrir þykja því
ekki vera efni til þess að víkja frá fastmótaðri dómvenju í málum sem þessu. Að framangreindu virtu og með hliðsjón af
dómaframkvæmd þykir refsing ákærða því réttilega ákveðin fangelsi í 30 daga.
Samkvæmt
1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til
að greiða sakarkostnað málsins, sem samkvæmt gögnum málsins er þóknun skipaðs
verjanda hans á rannsóknarstigi og fyrir dómi, Halldóru Aðalsteinsdóttur
lögmanns, er hæfilega þykir ákveðin 168.640 krónur að meðtöldum
virðisaukaskatti, og ferðakostnað verjanda, 2.016 krónur.
Margrét
Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Victor Yinusa, fæddur [...], sæti fangelsi í 30
daga.
Ákærði
greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, 168.640
krónur að virðisaukaskatti meðtöldum og ferðakostnað verjanda, 2.016 krónur.
Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir