• Lykilorð:
  • Ávana- og fíkniefni
  • Játningarmál
  • Fangelsi

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness mánudaginn 5. febrúar 2018 í máli nr. S-46/2018:

 

Ákæruvaldið

(Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi)

gegn

Myriam Mabchour Miquel

(Unnar Steinn Bjarndal lögmaður)

 

Mál þetta, sem dómtekið var 30. janúar 2018, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum 22. janúar 2018 á hendur ákærðu, Myriam Mabchour Miquel, fæddri 12. desember 1990, spænskum ríkisborgara;

„fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa sunnudaginn 7. janúar 2018, staðið að innflutningi á samtals 99,23 g af MDMA, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin flutti ákærða til landsins sem farþegi með flugi WW-627 frá Barcelona, Spáni, falin í líkama sínum.

Telst háttsemi þessi varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar og að gerð verði upptæk framangreind 99,23 g af MDMA, samkvæmt heimild í 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 10/1997 og 68/2001, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Kröfur ákærðu í málinu eru þær að henni verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa og að gæsluvarðhaldsvist sem hún hefur sætt frá 8. janúar 2018 verði dregin frá þeirri refsingu sem ákveðin verði að fullri dagatölu. Þá krefst verjandi ákærðu hæfilegrar þóknunar sér til handa samkvæmt framlagðri tímaskýrslu.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var málið tekið til dóms við þingfestingu þess 30. janúar sl. án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Niðurstaða:

Ákærða játaði brot sitt við þingfestingu máls þessa. Játning ákærðu samrýmist gögnum málsins. Brot hennar telst því sannað og er það réttilega heimfært til refsiákvæða í ákæru.

Ákærðu til málsbóta horfir játning hennar. Þá verður af gögnum málsins ekki séð að hún hafi áður hlotið dóm fyrir refsiverða háttsemi. Við ákvörðun refsingar verður hins vegar ekki framhjá því litið að ákærða er í málinu sakfelld fyrir að hafa flutt hingað til lands nokkuð magn af fíkniefninu MDMA, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Samkvæmt öllu þessu, og að gættum styrkleika þess efnis sem hér um ræðir, þykir refsing ákærðu, í ljósi dómaframkvæmdar, réttilega ákveðin þriggja mánaða fangelsi. Til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarðhald sem ákærða hefur sætt frá 8. janúar 2018 að fullri dagatölu, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ekki þykja vera efni til þess að binda refsingu ákærðu skilorði.

Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra lagaákvæða í ákæru verða gerð upptæk þau 99,23 grömm af MDMA sem ákærða var með í vörslum sínum við komuna til landsins 7. janúar sl.

Á grundvelli sakfellingar ákærðu, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður henni gert að greiða allan sakarkostnað málsins. Ákærða dæmist því til að greiða sakakostnað samkvæmt framlögðu reikningsyfirliti, samtals 108.612 krónur. Ákærða greiði einnig þóknun skipaðs verjanda síns, Unnars Steins Bjarndal lögmanns, sem eftir umfangi málsins þykir hæfilega ákveðin, vegna vinnu verjanda á rannsóknarstigi og eftir höfðun málsins hér fyrir dómi, svo sem í dómsorði greinir. Ákærða greiði enn fremur útlagðan ferðakostnað verjanda, 52.320 krónur.

Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð:

Ákærða, Myriam Mabchour Miquel, fædd 12. desember 1990, sæti fangelsi í þrjá mánuði. Til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarðhald sem ákærða hefur sætt frá 8. janúar 2018 að fullri dagatölu.

Ákærða sæti upptöku á 99,23 grömmum af MDMA.

Ákærða greiði 603.612 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, Unnars Steins Bjarndal lögmanns, 442.680 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum, og útlagðan ferðakostnað verjanda, 52.320 krónur.

 

Kristinn Halldórsson