• Lykilorð:
  • Játningarmál
  • Umferðarlagabrot

D ÓM U R

Héraðsdóms Reykjaness fimmtudaginn 7. mars 2019 í máli nr. S-12/2019:

 

Ákæruvaldið

(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Gunnari Óla Guðjónssyni

 

            Mál þetta, sem var tekið til dóms 1. mars 2019, höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 8. janúar 2019 á hendur Gunnari Óla Guðjónssyni, kt. 000000-0000, [...]; ,,fyrir eftirtalin umferðarlagabrot, með því að hafa:

1.      Þriðjudaginn 5. júní 2018 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti suður Reykjanesbraut í Kópavogi, að Skemmuvegi 4, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

2.      Laugardaginn 21. júlí 2018 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti um Herjólfsgötu í Hafnarfirði, aftan við Sundhöllina.

Teljast brot í báðum liðum varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.”

Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.

 

 Við þingfestingu málsins 1. mars 2019 kom ákærði fyrir dóm og játaði sök. Í ljósi játningar ákærða var farið með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var málið því tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað sök í málinu. Að mati dómsins samrýmist játning hans framkomnum gögnum. Brot ákærða teljast því sönnuð og eru réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur [...] og á samkvæmt framlögðu sakavottorði að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 2005. Við ákvörðun refsingar í máli þessu hefur eftirfarandi áhrif; Með dómi 4. desember 2008 var ákærði dæmdur í 45 daga fangelsi og var sviptur ökurétti ævilangt, meðal annars fyrir að hafa tvívegis á árinu 2008 ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis. Ákærði var dæmdur í 60 daga fangelsi auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting ákærða var áréttuð með dómi 21. júní 2011 fyrir að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis 26. nóvember 2010. Ákærði var dæmdur í 30 daga fangelsi með dómi 26. nóvember 2015 fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti. Með dómi 17. mars 2016 var ákærði dæmdur í 15 daga fangelsi fyrir akstur sviptur ökurétti 7. nóvember 2015, en með dómnum var ákærða gerður hegningarauki samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 við fyrrnefndan dóm frá 26. nóvember 2015.

Samkvæmt því sem að framan greinir um sakaferil ákærða og að brotum hans virtum, sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing hans samkvæmt dómvenju réttilega ákveðin fangelsi í 90 daga.

Engan sakarkostnað leiddi af rannsókn málsins eða meðferð þess fyrir dómi.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

DÓMSORÐ:

            Ákærði, Gunnar Óli Guðjónsson, sæti fangelsi í 90 daga.

 

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir