• Lykilorð:
  • Ávana- og fíkniefni
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Upptaka

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness miðvikudaginn 4. apríl 2018 í máli nr. S-104/2018:

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Antonio Jose Brandao Fernandes

(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)

 

Mál þetta, sem dómtekið var 14. mars sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum 22. febrúar 2018 á hendur ákærða, Antonio Jose Brandao Fernandes, fæddum 21. júlí 1986, portúgölskum ríkisborgara;

„fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 29. desember 2017, staðið að innflutningi á samtals 490,86 g af kókaíni (að styrkleika 71-78% kókaín, 80-87% af kókaínklóríði) og 282,34 g af hassi, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin flutti ákærði til landsins sem farþegi með flugi FI-213 frá Kaupmannahöfn, Danmörku, falin í líkama sínum í samtals 84 pakkningum, þar af 54 af kókaíni og 30 af hassi.

Telst háttsemi þessi varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar og að gerð verði upptæk framangreind 490,86 g af kókaíni og 282,34 g af hassi, samkvæmt heimild í 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 10/1997 og 68/2001, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Kröfur ákærða í málinu eru þær að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa og að gæsluvarðhaldsvist sem hann hefur sætt frá 30. desember 2017 verði dregin frá þeirri refsingu sem ákveðin verði að fullri dagatölu. Þá krefst skipaður verjandi ákærða hæfilegrar þóknunar sér til handa og til handa verjanda ákærða á fyrri stigum málsins samkvæmt fyrirliggjandi tímaskýrslum.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var málið tekið til dóms í þinghaldi 14. mars sl. án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Forsendur og niðurstaða:

Ákærði játaði brot sitt í þinghaldi 14. mars sl. Játning ákærða samrýmist gögnum málsins. Brot hans telst því sannað og er það réttilega heimfært til refsiákvæða í ákæru.

Við ákvörðun refsingar verður ekki framhjá því litið að ákærði er í málinu sakfelldur fyrir að hafa flutt hingað til lands talsvert magn fíkniefna sem ætluð voru til söludreifingar í ágóðaskyni.

Ákærða til málsbóta horfir skýlaus játning hans. Jafnframt þykir verða að leggja til grundvallar að ákærði hafi einungis komið að flutningi efnanna hingað til lands, hann hafi hvorki komið að skipulagningu né fjármögnun innflutningsins. Samkvæmt þessu, og að gættum styrkleika þeirra efna sem hér um ræðir, þykir refsing ákærða, í ljósi dómaframkvæmdar, réttilega ákveðin 12 mánaða fangelsi. Til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 30. desember 2017 að fullri dagatölu, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra lagaákvæða í ákæru verða gerð upptæk þau 490,86 grömm af kókaíni og 282,34 grömm af hassi sem ákærði var með í vörslum sínum við komuna til landsins 29. desember sl.

Á grundvelli sakfellingar ákærða, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður honum gert að greiða allan sakarkostnað málsins. Ákærði dæmist því til að greiða útlagðan sakakostnað samkvæmt framlögðum reikningum samtals 922.096 krónur. Ákærði greiði einnig þóknun verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, sem eftir umfangi málsins þykir með hliðsjón af fyrirliggjandi tímaskýrslu hæfilega ákveðin svo sem í dómsorði greinir. Þá verður ákærða enn fremur gert að greiða þóknun verjanda síns á fyrri stigum málsins, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, sem hæfilega þykir ákveðin með hliðsjón af fyrirliggjandi tímaskýrslu svo sem í dómsorði greinir. Ákærði greiði jafnframt útlagðan ferðakostnað lögmannsins, samtals 64.680 krónur.

Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Antonio Jose Brandao Fernandes, fæddur 21. júlí 1986, sæti fangelsi í 12 mánuði. Til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 30. desember 2017 að fullri dagatölu.

Ákærði sæti upptöku á 490,86 grömmum af kókaíni og 282,34 grömmum af hassi.

Ákærði greiði 1.977.536 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 505.920 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum, og þóknun verjanda síns á fyrri stigum málsins, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, 484.840 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum og útlagðan ferðakostnað lögmannsins, 64.680 krónur.

 

Kristinn Halldórsson