- Játningarmál
- Umferðarlagabrot
- Ökuréttarsvipting
- Ölvunarakstur
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjaness föstudaginn 14.
september 2018 í máli nr. S-142/2018:
Ákæruvaldið
(Halldór Rósmundur Guðjónsson
aðstoðarsaksóknari)
gegn
Rolands Kalnins
Mál
þetta, sem var tekið til dóms 5. september 2018, höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum
með ákæru 19. mars 2018, á hendur Rolands Kalnins, kt. 000000-0000, óstaðsettur
í hús:
,,fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa
sunnudaginn 22. janúar 2017, ekið bifreiðinni [...], sviptur ökurétti og undir
áhrifum áfengis (í blóði mældist vínandi
1,97 ‰) norður Ásbraut, Hafnarfirði, skammt norðan við
Hamranes þar sem bifreiðinni var ekið út af Ásbraut. Telst háttsemi þessi varða
við 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 3. gr. laga nr.
24/2007, allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess
er krafist að ákærð[i] verði dæmd[ur] til refsingar og til greiðslu alls
sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar, sbr. 1. mgr. 101. gr. og
102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr.
lög nr. 44/1993, lög nr. 57/1997 og lög nr. 69/2007.“
Þann 5. september 2018 var mál nr. S-383/2018 sameinað
máli þessu þessu, sbr. heimild í 1. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð
sakamála. Málið höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru, útgefinni 13.
ágúst 2018:
,,fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn
31. mars 2018, ekið bifreiðinni [...], á Vogavegi í Vatnsleysustrandarhreppi,
sviptur ökuréttindum og undir áhrifum áfengis (vínandi í blóði mældist 2.38 ‰). Telst háttsemi þessi varða við 1.
mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr.
umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og
til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist að ákærði verði dæmdur til
sviptingar ökuréttar, skv. 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 25.
gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006.“
Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið þau
brot sem honum eru gefin að sök og var farið með mál þetta samkvæmt 164. gr.
laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari
sönnunarfærslu eftir að sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá
sig í stuttu máli um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Sannað er með skýlausri játningu ákærða, sem er í samræmi
við framlögð sakargögn, að hann hafi gerst sekur um þau brot sem honum eru
gefin að sök og eru þau réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákærum. Ákærði
hefur því unnið sér til refsingar.
Ákærði er fæddur árið 1967 og á samkvæmt framlögðu
sakavottorði að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 2012. Með sektargerð
lögreglustjóra 4. júní 2012 samþykkti ákærði greiðslu sektar og sæta
tímabundinni sviptingu ökuréttar vegna ölvunaraksturs og brots gegn 1. mgr. 48.
gr. umferðarlaga (án þess að hafa öðlast ökuréttindi). Með sektargerð
lögreglustjóra 5. september 2013 samþykkti ákærði að greiða sekt og sæta
tímabundinni sviptingu ökuréttar fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti og undir
áhrifum áfengis. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 29. apríl 2015 var ákærði
dæmdur í þrjátíu daga fangelsi og var sviptur ökurétti ævilangt fyrir að aka
bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis. Þá var ákærði dæmdur í
þriggja mánaða fangelsi með dómi Héraðsdóms Reykjaness 24. febrúar 2017 og
ævilöng ökuréttarsvipting hans áréttuð, fyrir hraðakstur og akstur sviptur
ökurétti og undir áhrifum áfengis.
Brot ákærða samkvæmt ákæru dagsettri 19. mars 2018 voru
framin 22. janúar 2017, eða fyrir uppkvaðningu áðurnefnds dóms Héraðsdóms
Reykjaness frá 24. febrúar 2017. Við ákvörðun refsingar ákærða verður því eftir
því sem við á litið til 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. einnig
77. gr. sömu laga.
Að framangreindum sakaferli og brotum ákærða virtum
þykir refsing hans samkvæmt dómvenju réttilega ákveðin fimm mánaða fangelsi.
Með vísan til 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga, er ævilöng
ökuréttarsvipting ákærða áréttuð.
Á grundvelli sakfellingar ákærða, sbr. 1. mgr. 235. gr.
laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, er ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað
málsins, samkvæmt yfirlitum sækjanda og með stoð í öðrum gögnum málsins,
samtals 159.369 krónur.
Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara,
kveður upp dóm þennan.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Rolands Kalnins, sæti fangelsi í fimm mánuði.
Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.
Ákærði greiði 159.369 krónur í sakarkostnað.
Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir