• Lykilorð:
  • Fangelsi

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness mánudaginn 29. október 2018 í máli nr. S-425/2018:

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Mohammed Zahir Ahmadi

(Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)

 

I

Mál þetta, sem dómtekið var 23. október 2018, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum 17. september 2018, á hendur ákærða, Mohammed Zahir Ahmadi, fæddum [...], ríkisborgara frá Afganistan,

„fyrir skjalafals, með því að hafa, miðvikudaginn 8. ágúst 2018, framvísað við lögreglu í flugstöð Leifs Eiríkssonar, í blekkingarskyni, er hann kom til landsins með flugi nr. [...] frá Frankfurt, Þýskalandi, grunnfölsuðu vegabréfi frá Tékklandi nr. [...], á nafni A, f.d. [...], útgefnu þann 23.06.2017 með gildistíma til 23.06.2022.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá gerir skipaður verjandi ákærða kröfu um hæfilega þóknun sér til handa að mati dómsins.

II

Við þingfestingu málsins játaði ákærði brot sitt án undandráttar og fær játning hans stoð í gögnum málsins. Var því farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og er þar réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Engra gagna nýtur við um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi, en eins og fram er komið er hann afganskur ríkisborgari. Verður við ákvörðun refsingar tekið mið af þeirri staðreynd, sem og skýlausri játningu ákærða. Eins og mál þetta liggur fyrir þykja ekki efni til þess að víkja frá fastmótaðri dómvenju í málum sem þessum. Verður refsing ákærða samkvæmt því ákveðin fangelsi í 30 daga.

Með hliðsjón af úrslitum málsins og vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar. Er þar um að ræða þóknun skipaðs verjanda ákærða, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, vegna vinnu hennar á rannsóknarstigi og við meðferð málsins fyrir dómi. Ákveðst þóknunin 173.600 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ingimundur Einarsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

 

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Mohammed Zahir Ahmadi, sem fæddur er 2. desember 1989, sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, 173.600 krónur. 

 

Ingimundur Einarsson