• Lykilorð:
  • Skjalafals

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness fimmtudaginn 25. janúar 2018 í máli nr. S-495/2017:

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Haidar Mahde Saleh Elhumrani

(Brynjólfur Eyvindsson hdl.)

 

Mál þetta, sem dómtekið var 17. janúar 2018, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum útgefinni 18. desember 2017, á hendur ákærða, Haidar Mahde Saleh Elhumrani, fæddum [...], ríkisborgara frá Írak;

fyrir skjalafals, með því að hafa, mánudaginn 23. október 2017, framvísað við landamæraeftirlit í flugstöð Leifs Eiríkssonar, í blekkingarskyni, er hann var á leið til Kanada, með flugi WW-123, breytifölsuðu mexíkönsku vegabréfi nr. [...] á nafni A, fd. [...] með gildistíma frá [...] til [...].

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá gerir verjandi ákærða kröfu um hæfilega þóknun sér til handa svo og kröfu um hæfilega þóknun til handa tilnefndum verjanda á rannsóknarstigi málsins.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

 

Niðurstaða:

Við þingfestingu málsins játaði ákærði brot sitt án undandráttar og fær játning hans stoð í gögnum málsins. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og er þar réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Sakavottorð ákærða, sem er íraskur ríkisborgari, liggur ekki frammi í málinu. Engra gagna nýtur um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Verður við ákvörðun refsingar tekið mið af þeirri staðreynd, sem og skýlausri játningu ákærða. Svo sem mál þetta liggur fyrir þykja ekki vera efni til þess að víkja frá fastmótaðri dómvenju í málum sem þessum. Refsing ákærða þykir samkvæmt því réttilega ákveðin fangelsi í 30 daga.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008, sbr. 68. gr. laga nr. 49/2016, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar. Er þar um að ræða þóknun tilnefnds verjanda á rannsóknarstigi, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, sem ákveðst 42.160 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og þóknun skipaðs verjanda ákærða vegna meðferðar málsins fyrir dómi, Brynjólfs Eyvindssonar lögmanns, sem ákveðst 120.280 krónur, einnig að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ingimundur Einarsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

 

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Haidar Mahde Saleh Elhumrani, fæddur [...], sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði greiði þóknun tilnefnds verjanda á rannsóknarstigi, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, 42.160 krónur, og þóknun skipaðs verjanda ákærða vegna meðferðar málsins fyrir dómi, Brynjólfs Eyvindssonar lögmanns, 120.280 krónur, hvort tveggja að meðtöldum virðisaukaskatti.

 

Ingimundur Einarsson