• Lykilorð:
  • Fangelsi
  • Skjalafals

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness mánudaginn 29. október 2018 í máli nr. S-424/2018:

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Uels Veliaj

(Ásta Björk Eiríksdóttir lögmaður)

 

I

Mál þetta, sem dómtekið var 23. október 2018, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum 17. september 2018, á hendur ákærða, Uels Veliaj, fæddum [...], ríkisborgara frá Albaníu,

„fyrir skjalafals, með því að hafa, sunnudaginn 19. ágúst 2018, framvísað við landamæravörð í flugstöð Leifs Eiríkssonar, í blekkingarskyni, er hann var á leið til Dublin, Írlandi, með flugi nr. [...], grunnfölsuðu ítölsku kennivottorði nr. [...], á nafni A, f.d. [...], útgefnu þann 27.07.2012 með gildistíma til 17.11.2022.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

 Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá gerir skipaður verjandi ákærða kröfu um hæfilega þóknun sér til handa að mati dómsins.

II

Við þingfestingu málsins játaði ákærði brot sitt án undandráttar og fær játning hans stoð í gögnum málsins. Var því farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og er þar réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Engra gagna nýtur við um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi, en eins og fram er komið er hann albanskur ríkisborgari. Verður við ákvörðun refsingar tekið mið af þeirri staðreynd, sem og skýlausri játningu ákærða. Eins og mál þetta liggur fyrir þykja ekki efni til þess að víkja frá fastmótaðri dómvenju í málum sem þessum. Verður refsing ákærða samkvæmt því ákveðin fangelsi í 30 daga.

Með hliðsjón af úrslitum málsins og vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar. Er þar um að ræða þóknun skipaðs verjanda ákærða, Ástu Bjarkar Eiríksdóttur lögmanns, vegna vinnu hennar á rannsóknarstigi og við meðferð málsins fyrir dómi. Ákveðst þóknunin 173.600 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ingimundur Einarsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

 

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Uels Veliaj, sem fæddur er 23. apríl 1993, sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Ástu Bjarkar Eiríksdóttur lögmanns, 173.600 krónur. 

 

Ingimundur Einarsson