• Lykilorð:
  • Ávana- og fíkniefni
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Upptaka

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness þriðjudaginn 11. september 2018 í máli nr. S-367/2018:

 

Ákæruvaldið

(Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Arturas Bieliunas

(Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)

 

Mál þetta, sem dómtekið var 6. september 2018, er höfðað með ákæru héraðssaksóknara 9. ágúst 2018 á hendur ákærða, Arturas Bieliunas, litháískum ríkisborgara, fæddum […];

fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt mánudagsins 11. júní 2018, staðið að innflutningi á samtals 1.038,42 g af kókaíni, sem hafði 37% styrkleika, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin flutti ákærði til Íslands sem farþegi með flugi EW-880 frá Köln í Þýskalandi til Keflavíkurflugvallar, falin innvortis í líkama sínum.

Telst brot þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 64/1974 og 32/2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Krafist er upptöku á 1.038,42 g af kókaíni, með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Kröfur ákærða í málinu eru þær að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa og að gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá 11. júní 2018 verði dregið frá þeirri refsingu sem ákveðin verði að fullri dagatölu. Þá krefst ákærði þess að allur kostnaður sakarinnar greiðist úr ríkissjóði, þar með talin hæfileg þóknun til handa skipuðum verjanda.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var málið tekið til dóms við þingfestingu þess án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Forsendur og niðurstaða:

Ákærði játaði brot sitt samkvæmt ákæru héraðssaksóknara við þingfestingu máls þessa 6. september sl. Játning ákærða samrýmist gögnum málsins. Brot hans telst því sannað og er það réttilega heimfært til refsiákvæða í ákæru.

Við ákvörðun refsingar er til þess að líta að ákærði er í málinu sakfelldur fyrir að hafa flutt hingað til lands talsvert magn af kókaíni, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Ákærða til málsbóta horfir játning hans. Jafnframt þykir verða að leggja til grundvallar að ákærði hafi einungis komið að flutningi efnanna hingað til lands. Hann hafi hvorki komið að skipulagningu né fjármögnun innflutningsins. Við ákvörðun refsingar verður einnig að taka mið af styrkleika efnanna, en styrkleiki þess kókaíns sem ákærði flutti til landsins var vægur, eða nærri þekktum neyslustyrk efnisins hér á landi. Samkvæmt öllu þessu þykir refsing ákærða, í ljósi dómaframkvæmdar, réttilega ákveðin 15 mánaða fangelsi. Til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 11. júní 2018 að fullri dagatölu, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra lagaákvæða í ákæru verða gerð upptæk þau 1.038,42 grömm af kókaíni sem ákærði var með í vörslum sínum við komuna til landsins 11. júní sl.

Með vísan til sakfellingar ákærða, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður honum gert að greiða allan sakarkostnað málsins. Ákærði dæmist því til að greiða sakarkostnað samkvæmt framlögðu sakarkostnaðaryfirliti, dagsettu 16. júlí 2018, samtals 729.299 krónur. Ákærði greiði einnig þóknun skipaðs verjanda síns, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, sem eftir umfangi málsins þykir hæfilega ákveðin að virðisaukaskatti meðtöldum, vegna vinnu verjanda á rannsóknarstigi og eftir höfðun málsins hér fyrir dómi, svo sem í dómsorði greinir. Ákærði greiði enn fremur útlagðan ferðakostnað verjanda, 67.760 krónur.

Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

 

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Arturas Bieliunas, fæddur […], sæti fangelsi í 15 mánuði. Til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 11. júní 2018 að fullri dagatölu.

Ákærði sæti upptöku á 1.038,42 grömmum af kókaíni.

Ákærði greiði 1.450.539 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, 653.480 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum, og útlagðan ferðakostnað verjanda, 67.760 krónur.

 

Kristinn Halldórsson