• Lykilorð:
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Skjalafals

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness föstudaginn 11. janúar 2019 í máli nr. S-656/2018:

Ákæruvaldið

(Súsanna Björg Fróðadóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Shpetim Mazrekaj

(Úlfar Guðmundsson lögmaður)

 

Mál þetta, sem dómtekið var 20. desember 2018, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum útgefinni þann sama dag á hendur ákærða, Shpetim Mazrekaj, fæddum […], albönskum ríkisborgara;

fyrir skjalafals, með því að hafa, sunnudaginn 9. desember 2018, framvísað við lögreglu, í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, í blekkingarskyni rúmensku kennivottorði nr. […] á nafni […], fd. […] í Rúmeníu, með gildistíma frá 21. janúar 2014 til 15. janúar 2024, sem var grunnfalsað, er ákærði kom í vegabréfaskoðun vegna flugs til WW-852 til Dublin, Írlandi.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá gerir verjandi ákærða kröfu um hæfilega þóknun sér til handa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Forsendur og niðurstaða:

Við þingfestingu máls þessa játaði ákærði brot sitt án undandráttar. Játning ákærða fær stoð í gögnum málsins. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Sakavottorð ákærða, sem er albanskur ríkisborgari, liggur ekki frammi í málinu. Engra gagna nýtur um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Verður við ákvörðun refsingar tekið mið af þeirri staðreynd, sem og skýlausri játningu ákærða. Svo sem málið liggur fyrir þykja ekki vera efni til þess að víkja frá fastmótaðri dómvenju í málum sem þessu. Refsing ákærða þykir samkvæmt því réttilega ákveðin fangelsi í 30 daga.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar. Eingöngu er um að ræða þóknun skipaðs verjanda ákærða, Úlfars Guðmundssonar lögmanns, er hæfilega þykir ákveðin svo sem í dómsorði greinir.

Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Shpetim Mazrekaj, fæddur […], sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Úlfars Guðmundssonar lögmanns, 168.640 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum.

 

Kristinn Halldórsson