• Lykilorð:
  • Játningarmál

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness miðvikudaginn 30. apríl 2019 í máli nr. S-113/2019:

 

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Zahid Imran

(Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)

 

            Mál þetta, sem var tekið til dóms 8. apríl sl., höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 18. febrúar 2019 á hendur ákærða, Zahid Imran, fæddum [...], pakistönskum ríkisborgara;

            ,,fyrir skjalafals, með því að hafa, miðvikudaginn 7. nóvember 2018, framvísað við landamæragæslu í flugstöð Leifs Eiríkssonar, í blekkingarskyni, er hann kom til landsins frá Milanó, Ítalíu, með flugi [...], breytifölsuðu vegabréfi frá Pakistan, ánöfnuðu [...], fd. [...], nr. [...] með gildistíma 17.12.2014 til 16.12.2024.

            Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá gerir skipaður verjandi kröfu um hæfilega þóknun sér til handa vegna starfa á rannsóknarstigi og fyrir dómi auk ferðakostnaðar.

 

Við fyrirtöku málsins 8. apríl 2019 kom ákærði fyrir dóm og játaði sök. Játning ákærða fær stoð í gögnum málsins. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Sakavottorð ákærða liggur ekki frammi í málinu. Engra gagna nýtur við um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Verður við ákvörðun refsingar tekið mið af þeirri staðreynd, sem og skýlausri játningu ákærða.

Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ákærði geti talist hafa stöðu flóttamanns. Eins og málið liggur fyrir þykja því ekki vera efni til þess að víkja frá fastmótaðri dómvenju í málum sem þessu. Að framangreindu virtu og með hliðsjón af dómaframkvæmd þykir refsing ákærða því réttilega ákveðin fangelsi í 30 daga.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað málsins, sem er þóknun skipaðs verjanda hans á rannsóknarstigi og fyrir dómi, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, er hæfilega þykir ákveðin 189.720 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og nemur ferðakostnaður verjanda 12.096 krónum.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

DÓMSORÐ:

            Ákærði, Zahid Imran, fæddur [...], sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, 189.720 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum, og ferðakostnað verjanda, 12.096 krónur.

 

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir