• Lykilorð:
  • Ávana- og fíkniefni
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Svipting ökuréttar
  • Umferðarlagabrot
  • Ölvunarakstur

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 12. september 2018 í máli nr. S-439/2018:

Ákæruvaldið

(Jóhann Svanur Hauksson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Magnúsi Magnússyni

 

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 5. júní 2018, á hendur Magnúsi Magnússyni, kt. 000000-0000, Sólheimar 25, Reykjavík,   fyrir umferðarlagabrot í Reykjavík með því að hafa föstudaginn 13. október 2017 ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis og óhæfur að stjórna bifreiðinni örugglega eftir vegna áhrifa og neyslu ávana- og fíkniefna (vínandamagn í blóði mældist 1,81 ‰, í þvagi mældist tetrahýdrókannabínólsýra) um Skeifuna uns aksturinn var stöðvaður á bifreiðastæði við veitingastaðinn Metro í Skeifunni.

 

Telst þetta varða við 1.  sbr. 3. mgr. 45. gr., 1.og 2. mgr. 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðalaga nr. 50/1987, sbr. 1. gr. laga nr. 48/1997.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.

 

Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.

 

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín.  Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er háttsemin réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

 

Ákærði er fæddur í júní 1965. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 1. júní 2018, gekkst hann undir sektarrefsingu með lögreglustjórasáttum, annars vegar 10. september 2012 og hins vegar 25. október 2016 vegna ölvunar- og fíkniefnaaksturs. Sakavottorð hans hefur að öðru leyti ekki þýðingu við ákvörðun refsingar í þessu máli.

 Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru, einkum 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/19897, er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.

Ákærði greiði 110.010 krónur í sakarkostnað.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari.

Lilja Rún Sigurðardóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

 

 

                                                   D Ó M S O R Ð:       

Ákærði, Magnús Magnússon, sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja.

Ákærði greiði 110.010 krónur í sakarkostnað.

 

Lilja Rún Sigurðardóttir