• Lykilorð:
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Skilorðsbundnir dómar
  • Þjófnaður

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 19. september 2018 í máli nr. S-475/2018:

Ákæruvaldið

(Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi)

gegn

Róberti Viðarssyni

(Jóhannes Árnason lögmaður)

 

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 19. júní 2018, á hendur Róberti Viðarssyni, kt. 000000-0000, Einihrauni 12, 311 Borgarnesi, fyrir þjófnað með því að hafa, miðvikudaginn 28. desember 2016, stolið 14 málverkum í eigu [B], að óþekktu verðmæti, úr kjallarageymslu íbúðar nr. 601, að [---] í Reykjavík, í félagi við [A], kt. 000000-0000, með því að hafa ekið þeim báðum að brotavettvangi, beðið við bifreiðina á meðan [A] sótti málverkin í kjallarageymsluna eftir að hafa spennt upp dyrnar að henni með kúbeini, tekið við málverkunum og sett þau inn í bifreiðina og að lokum farið með þau í geymslu að [---] í Reykjavík og haft þau þar í vörslum sínum.

 

Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

 

Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og afsalar sér þóknun.

 

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er háttsemin réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði er fæddur í apríl 1981. Hann hefur ekki áður gerst sekur um refsivert brot. Ákærði hefur játað brot sitt greiðlega fyrir dómi og á rannsóknarstigi málsins og er það virt honum til málsbóta. Þá var ákærði samvinnufús á rannsóknarstigi og  vísaði lögreglu m.a. á þýfi. Vísast í þessu sambandi til 8. og 9. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með hliðsjón af framangreindu og sakarefni þessa máls þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 90 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari.

Lilja Rún Sigurðardóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

 

 

                                                   D Ó M S O R Ð:       

Ákærði, Róbert Viðarsson, sæti fangelsi í 90 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

 

Lilja Rún Sigurðardóttir