• Lykilorð:
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Svipting ökuréttar
  • Umferðarlagabrot

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 31. október 2018 í máli nr. S-595/2018:

Ákæruvaldið

(Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Tómasi Núma Sigurðssyni

(Páll Bergþórsson lögmaður)

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 25. september 2018, á hendur Tómasi Núma Sigurðssyni, kt. [...], [...], Kópavogi, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa sunnudaginn 6. ágúst 2017, ekið bifreiðinni [...] austur Sæbraut við Kalkofnsveg, Reykjavík, sviptur ökurétti og ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa áfengis og ávana- og fíkniefna. (í blóði mældist vínandi 1,20, kókaín 50 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 0,7 ng/ml).

 

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 3. mgr. 45. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 100. gr. sömu laga.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist að ákærði verði dæmdur til sviptingar ökuréttar, skv. 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006.

 

Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í janúar 1993.  Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 19. september 2018, hefur ákærði fjórum sinnum verið sektaður fyrir brot gegn umferðarlögum. Nú síðast gekkst ákærði undir sektarrefsingu með lögreglustjórasátt, 13. ágúst 2013, vegna aksturs sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis.

Með hliðsjón af dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti í 5 ár frá uppkvaðningu dóms þessa að telja.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Páls Bergþórssonar lögmanns, 84.320 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og 157.351 krónur í annan sakarkostnað.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari.

Benedikt Smári Skúlason, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

 

 

                                                   D Ó M S O R Ð:       

Ákærði, Tómas Númi Sigurðsson, sæti fangelsi í 45 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti í 5 ár frá uppkvaðningu dómsins að telja.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Páls Bergþórssonar, 84.320 krónur og 157.351 krónur í annan sakarkostnað.

 

                                                   Benedikt Smári Skúlason