• Lykilorð:
  • Ítrekun
  • Fangelsi
  • Svipting ökuréttar
  • Umferðarlagabrot
  • Útivist

D Ó M U R

Héraðsdóms Suðurlands föstudaginn 16. febrúar í máli nr. S-257/2017:

Ákæruvaldið

(Elimar Hauksson fulltrúi)

gegn

Hákoni Má Jósepssyni

 

 

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 1. febrúar sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 18. desember sl., á hendur Hákoni Má Jósepssyni,  til heimilis að Borgarbraut 16, Grímsnes- og Grafningshreppi,   

 

I.             fyrir umferðarlagabrot

með því að hafa, sunnudaginn 27. ágúst 2017, ekið bifreiðinni […] norður Hringbraut í Reykjanesbæ, sviptur örkuréttindum og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa amfetamíns og MDMA.

 

II.                       fyrir umferðarlagabrot

með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 8. október 2017, ekið bifreiðinni […] um Vesturlandsveg skammt norðan við Bifröst í Borgarbyggð, sviptur ökuréttindum og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa amfetamíns.

 

Teljast brot ákærða samkvæmt báðum ákæruliðum varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta sviptingu ökuréttar, samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987 með áorðnum breytingum og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

 

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru þann 12. janúar sl., ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Í matsgerð frá rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, sem liggur frammi meðal rannsóknargagna lögreglu er varða ákærulið I, kemur fram að amfetamín og MDMA hafi fundist í þvagi ákærða. Þá hafi í blóði hans mælst amfetamín 360 ng/ml og MDMA 205 ng/ml. Í matsgerð frá rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, sem liggur frammi meðal rannsóknargagna lögreglu er varða ákærulið II, kemur fram að amfetamín hafi fundist í þvagi ákærða. Þá hafi í blóði hans mælst amfetamín 235 ng/ml. Um málavexti að öðru leyti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði sex sinnum áður sætt refsingu. Þann 15. desember 2016 var ákærða gerð sekt meðal annars vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Þann 23. janúar 2017 var ákærða gerð sekt meðal annars vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna, en þar var um að ræða hegningarauka við fyrrgreinda sektargerð. Þann 18. ágúst 2017 lauk ákærði þremur málum lögreglu með undirritun sektargerðar, er öll vörðuðu akstur sviptur ökurétti sem og í tveimur tilvikum aksturs undir áhrifum fíkniefna. Loks var ákærða þann 4. desember sl., gerð sekt meðal annars vegna aksturs sviptur ökurétti og akstur undir áhrifum fíkniefna. Brot það sem ákærði er nú sakfelldur fyrir er framið fyrir ákvörðun framangreindra viðurlaga og verður ákærða því nú dæmdur hegningarauki, með vísan til 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Að virtum sakaferli ákærða þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga. Með vísan til dómvenju þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til 101. og 102. gr., þó einkum 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, ber að svipta ákærðu ökurétti ævilangt. Með vísan til 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem nemur samkvæmt yfirliti lögreglu samtals 240.840 kr.

Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

D ó m s o r ð :

Ákærði, Hákon Már Jósepsson, sæti fangelsi í 60 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, 240.840 krónur.

 

                                                                        Sólveig Ingadóttir.