• Lykilorð:
  • Ávana- og fíkniefni
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Skilorð

D Ó M U R

Héraðsdóms Suðurlands föstudaginn 6. júlí 2018 í máli nr. S-78/2018:

Ákæruvaldið

(Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi lögreglustjórans á Suðurlandi)

gegn

Ólafi Frey Gunnarssyni

(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)

 

 

Mál þetta, sem dómtekið var fimmtudaginn 21. júní sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans í Vestmannaeyjum þann 27. mars 2018 sl., á hendur Ólafi Frey Gunnarssyni, til heimilis að […],  

 

„fyrir fíkniefnalagabrot

með því að hafa síðdegis laugardaginn 5. ágúst 2017 haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni samtals 19,31 gramm af kókaíni og 1,42 grömm af amfetamíni en kókaínið fannst í hægri buxnavasa ákærða og amfetamínið í vinstri buxnavasa hans við líkamsleit sem lögregla framkvæmdi á ákærða við […] í Vestmannaeyjum.

(Mál nr. 319-2017-3166)

 

Telst þetta varða við 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist að ákærða verði gert að sæta upptöku á samtals 19,31 grammi af kókaíni og 7,42 [sic] grömmum af amfetamíni samkvæmt 6. mgr. 5. gr. nefndra laga um ávana- og fíkniefni og 2. mgr. 14. gr. nefndrar reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni.“

 

Við fyrirtöku málsins þann 21. júní sl. óskaði sækjandi leiðréttingar á upptökukröfu ákæru, þar sem misritun hefði orðið er varðaði magn amfetamíns. Var bókað að krafist væri upptöku á 1,42 g af amfetamíni. Ákærði mætti við fyrirtöku málsins þann 21. júní sl., ásamt skipuðum verjanda sínum, Guðmundi St. Ragnarssyni lögmanni. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði ekki áður sætt refsingu. 

Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Að virtum atvikum máls, að teknu tilliti til skýlausrar játningar ákærða og hreins sakaferils hans, þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.

Með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, eru gerð upptæk framangreind fíkniefni líkt og greinir í dómsorði.

Með vísan til 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, með síðari breytingum, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem nemur samkvæmt yfirliti lögreglu 226.898 kr., auk þóknunar skipaðs verjanda sem er hæfilega ákveðin 231.880 kr., að teknu tilliti til virðisaukaskatts.

Sigurður G. Gíslason héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

 

D ó m s o r ð :

Ákærði, Ólafur Freyr Gunnarsson, sæti fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.

Gerð eru upptæk 19,31 g af kókaíni og 1,42 g af amfetamíni.

Ákærði greiði sakarkostnað samtals 458.778 krónur, þar af þóknun skipaðs verjanda, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 231.880 krónur, að teknu tilliti til virðisaukaskatts.

 

 

 

                                                            Sigurður G. Gíslason