• Lykilorð:
  • Ítrekun
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Umferðarlagabrot

D Ó M U R

Héraðsdóms Suðurlands fimmtudaginn 1. febrúar 2018 í máli nr. S-237/2017:

Ákæruvaldið

(Elimar Hauksson fulltrúi)

gegn

Friðgeiri Stefánssyni

(Jónína Guðmundsdóttir lögmaður)

 

 

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 18. janúar sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 4. desember sl., á hendur Friðgeiri Stefánssyni,  til heimilis að Tjaldhólum 44, Selfossi,   

 

fyrir umferðarlagabrot

með því að hafa, fimmtudaginn 9. nóvember 2017, ekið bifreiðinni […] um bifreiðastæði við verslun Krónunnar við Austurveg 3 á Selfossi, sviptur ökurétti. 

 

Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

 

Ákærði mætti við þingfestingu málsins, ásamt Jónínu Guðmundsdóttur lögmanni, sem skipuð var verjandi ákærða að hans ósk. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði átta sinnum áður sætt refsingu, þar af þrisvar sinnum vegna akstur sviptur ökurétti. Þann 25. mars 2014 var ákærði meðal annars fundinn sekur um akstur sviptur ökurétti og honum gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði. Þann 13. janúar 2016 var ákærði meðal annars fundinn sekur um akstur sviptur ökurétti og honum gert að sæta fangelsi í 90 daga. Þann 20. október sama ár var ákærði meðal annars fundinn sekur um aksturs sviptur ökurétti og honum gert að sæta fangelsi í sex mánuði. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærða ekki áhrif við ákvörðun refsingar í máli þessu.

Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga. Með vísan til dómvenju þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.

Með vísan til 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem er þóknun skipaðs verjanda hans og er hæfilega ákveðin 84.320 kr., að teknu tilliti til virðisaukaskatts.

Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

D ó m s o r ð :

Ákærði, Friðgeir Stefánsson, sæti fangelsi í 60 daga.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, 84.320 krónur, sem er þóknun skipaðs verjanda, Jónínu Guðmundsdóttur, að teknu tilliti til virðisaukaskatts.

 

                                                                        Sólveig Ingadóttir.