• Lykilorð:
  • Hegningarauki
  • Ítrekun
  • Fangelsi
  • Svipting ökuréttar
  • Umferðarlagabrot
  • Útivist

D Ó M U R

Héraðsdóms Suðurlands mánudaginn 16. apríl 2018 í máli nr. S-54/2018:

Ákæruvaldið

(Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)

gegn

Helga Má Reynissyni

 

 

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 12. apríl sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 26. febrúar sl., á hendur Helga Má Reynissyni,  með óþekkt lögheimili á Portúgal, 

I.             fyrir umferðarlagabrot

með því að hafa, að kvöldi fimmtudagsins 28. apríl 2016, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 2,66 ‰) um bifreiðastæði vestan Snorragötu, gegnt Sigló Hóteli á Siglufirði í Fjallabyggð.

 

Teljast brot ákærða varða við 1. mgr. 48. gr. og 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, allt sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

 

II.                       fyrir umferðarlagabrot

með því að hafa, þriðjudaginn 10. október 2017, ekið bifreiðinni […] norður Grafningsveg við Stóraskyggni í Bláskógabyggð, sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 3,50 ‰) og án þess að hafa nægjanlegt hliðarbil milli bifreiðar ákærða og bifreiðarinnar […] sem kom úr gagnstæðri átt þannig að bifreiðarnar rákust saman er þær mættust á veginum og enn fremur fyrir að hafa látið hjá líða að nema þegar staðar eftir áreksturinn en ákærði ók bifreið sinni áfram norður Grafningsveg uns hann ók út af veginum nokkru norðar.

 

Teljast brot ákærða varða við 1. mgr. 10. gr., 1. mgr. 19. gr., 1. mgr. 48. gr. og 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, allt sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987 með áorðnum breytingum og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

 

 

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru í Lögbirtingablaði þann 9. mars sl., ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði hefur ákærði fjórum sinnum áður sætt refsingu, í öll skiptin vegna umferðarlagabrota. Þann 2. júní 2014 lauk ákærði tveimur málum hjá lögreglustjóra þar sem hann gekkst undir greiðslu sektar vegna ölvunaraksturs. Þann 27. apríl 2015 var ákærða gerð sekt meðal annars vegna ölvunaraksturs og aksturs sviptur ökurétti. Loks var ákærða þann 6. júní 2016 gerð sekt meðal annars vegna aksturs sviptur ökurétti. Brot það sem lýst er í ákærulið I, er ákvörðun síðastgreindra viðurlaga og verður ákærða því nú að hluta dæmdur hegningarauki, með vísan til 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Refsing ákærða er með vísan til 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, hæfilega ákveðin fangelsi í 90 daga. Með vísan til dómvenju þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til 101. og 102. gr., þó einkum 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, ber að svipta ákærða ökurétti ævilangt. Með vísan til 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, með síðari breytingum, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem nemur samkvæmt yfirliti lögreglu samtals 143.322 kr.

Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

D ó m s o r ð :

Ákærði, Helgi Már Reynisson, sæti fangelsi í 90 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, 143.322 krónur. 

 

                                                                        Sólveig Ingadóttir.