• Lykilorð:
  • Ítrekun
  • Fangelsi
  • Skilorðsrof
  • Umferðarlagabrot
  • Útivist

D Ó M U R

Héraðsdóms Suðurlands fimmtudaginn 1. febrúar 2018 í máli nr. S-239/2017:

Ákæruvaldið

(Elimar Hauksson fulltrúi)

gegn

Ragnari Haraldssyni

(Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

 

 

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 18. janúar sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 4. desember sl., á hendur Ragnari Haraldssyni,  til heimilis að Langagerði 58, Reykjavík,

 

fyrir umferðarlagabrot

með því að hafa, að morgni mánudagsins 2. október 2017, ekið bifreiðinni […] um Suðurlandsveg við Kirkjuferju í Sveitarfélaginu Ölfusi, sviptur ökurétti. 

 

Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

 

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru þann 15. desember sl., ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Samkvæmt ósk ákærða á birtu fyrirkalli var Stefán Karl Kristjánsson lögmaður, skipaður verjandi ákærða.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði níu sinnum áður sætt refsingu, þar af tvisvar sinnum meðal annars vegna aksturs sviptur ökurétti. Þann 19. september 2016 var ákærða gerð sekt, meðal annars vegna aksturs sviptur ökurétti. Þann 28. september 2017 var ákærði meðal annars fundinn sekur um akstur sviptur ökurétti og hann dæmdur til að sæta fangelsi í 4 mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærða jafnframt gerð sekt. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærða ekki áhrif við ákvörðun refsingar í máli þessu. Ljóst er að ákærði hefur með broti sínu rofið skilorð framangreinds dóms. Með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ber að taka framangreinda refsingu upp og dæma með hinu nýja broti, og ákveða refsingu ákærða í einu lagi með vísan til 77. sömu laga. 

Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði. Að virtum atvikum máls þykir rétt að fresta fullnustu hluta refsingarinnar líkt og nánar greinir í dómsorði.  

Með vísan til 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem er þóknun skipaðs verjanda hans, sem er hæfilega ákveðin 63.240 kr. að teknu tilliti til virðisaukaskatts.

Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Ragnar Haraldsson, sæti fangelsi í fimm mánuði, en fresta skal fullnustu fjögurra mánaða refsingarinnar og skal sá hluti hennar falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, 63.240 krónur, sem er þóknun skipaðs verjanda, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, að teknu tilliti til virðisaukaskatts.

 

                                                                        Sólveig Ingadóttir.