• Lykilorð:
  • Ítrekun
  • Fangelsi
  • Svipting ökuréttar
  • Umferðarlagabrot
  • Útivist
  • Ölvunarakstur

D Ó M U R

Héraðsdóms Suðurlands þriðjudaginn 19. mars í máli nr. S-34/2019:

Ákæruvaldið

(Elimar Hauksson fulltrúi)

gegn

Markúsi Auðuni Eiríkssyni

 

 

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 14. mars sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann Markúsi Auðunni Eiríkssyni sl., á hendur Markúsi Auðuni Eiríkssyni,

 

fyrir umferðarlagabrot

með því að hafa, laugardaginn 15. desember 2018, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 1,40 ‰) vestur Suðurlandsveg við Hjarðarból í Sveitarfélaginu Ölfusi.

  

Teljast brot ákærða varða við 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta sviptingu ökuréttar frá 13.07.2020 að telja samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987 með áorðnum breytingum og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

 

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru þann 25. febrúar sl., ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði tvisvar sinnum áður sætt refsingu, í bæði skiptin vegna ölvunaraksturs. Þann 7. júní 2013 var ákærða gerð sekt vegna ölvunaraksturs og hann sviptur ökurétti tímabundið. Þá var ákærða þann 13. júlí 2018 gerð sekt meðal annars fyrir að hafa þann 23. apríl 2018, ekið ölvaður og hann aftur sviptur ökurétti tímabundið.  

Refsing ákærða er að virtum sakaferli hans hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Með vísan til dómvenju þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til 101. og 102. gr., þó einkum 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, ber að svipta ákærðu ökurétti ævilangt. Eru því ekki efni til að ákveða upphafstíma sviptingarinnar. Með vísan til 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem nemur samkvæmt yfirliti lögreglu samtals 43.268 kr.

Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

D ó m s o r ð :

Ákærði, Markús Auðunn Eiríksson, sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, 43.268 krónur.

 

                                                                        Sólveig Ingadóttir.