- Ítrekun
- Fangelsi
- Svipting ökuréttar
- Umferðarlagabrot
- Útivist
D Ó M U R
Héraðsdóms Suðurlands mánudaginn 16. apríl 2018 í máli
nr. S-53/2018:
Ákæruvaldið
(Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)
gegn
Eggerti Má Marinóssyni
(enginn)
Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 12. apríl sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 26. febrúar sl., á hendur Eggerti Má Marinóssyni, óstaðsettum í hús í Reykjavík,
fyrir
umferðarlagabrot
með því að hafa, síðdegis miðvikudaginn 1. nóvember 2017, ekið bifreiðinni […]
sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 0,52‰) um
Hörðuvelli á Selfossi.
Teljast brot ákærða varða við 1. mgr. 48. gr. og 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45.
gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.
Þess er
krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta sviptingu ökuréttar
samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987 með áorðnum breytingum og
til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru þann 14. mars sl., ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði fjórum sinnum áður sætt refsingu, þar af tvívegis vegna umferðarlagabrota. Þann 25. mars 2015 var ákærða gerð sekt meðal annars vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Þá var ákærða þann 5. apríl 2016 gerð sekt vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna sem og akstur sviptur ökurétti. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærða ekki áhrif við ákvörðun refsingar í máli þessu.
Refsing ákærða er
hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Með vísan til dómvenju þykja ekki efni til
að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til 101. og 102. gr., þó einkum 3. mgr.
101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, ber að svipta ákærða
ökurétti ævilangt. Með vísan til 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála,
með síðari breytingum, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem
nemur samkvæmt yfirliti lögreglu samtals 35.498 kr.
Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara,
kveður upp dóm þennan.
D
ó m s o r ð :
Ákærði,
Eggert Már Marinósson, sæti fangelsi í 30 daga.
Ákærði
er sviptur ökurétti ævilangt.
Ákærði
greiði allan sakarkostnað, 35.498 krónur.
Sólveig Ingadóttir.