• Lykilorð:
  • Brot gegn valdstjórninni
  • Fangelsi
  • Skilorð

D Ó M U R

Héraðsdóms Suðurlands fimmtudaginn 14. febrúar 2019 í máli nr. S-23/2019:

Ákæruvaldið

(Pétur Hrafn Hafstein saksóknarfulltrúi)

gegn

Erlendi Halldórssyni

 

 

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 7. febrúar sl., er höfðað með ákæru Héraðssaksóknara þann 10. janúar sl., á hendur Erlendi Halldórssyni,  

 

fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa að kvöldi fimmtudagsins 12. október 2017, á slysadeild Landspítalans í Fossvogi í Reykjavík, hótað lögreglumanninum A, sem þar var við skyldustörf, lífláti og líkamsmeiðingum og með því að hafa reynt að bíta í hægri hönd lögreglumannsins og ítrekað reynt að sparka í hann.

 

Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

 

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru þann 22. janúar sl., ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur sakaferill ákærða ekki áhrif við ákvörðun refsingar í máli þessu.

Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Að virtum atvikum máls, að teknu tilliti til þess að ákærði hefur ekki áður sætt refsingu fyrir ofbeldisbrot, þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum. Engan sakarkostnað leiddi af máli þessu.

Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

D ó m s o r ð :

Ákærði, Erlendur Halldórsson, sæti fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.

 

 

                                                                        Sólveig Ingadóttir.