• Lykilorð:
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Svipting ökuréttar
  • Eignaupptaka
  • Umferðarlagabrot

D Ó M U R

Héraðsdóms Suðurlands föstudaginn 8. júní 2018 í máli nr. S-86/2018:

Ákæruvaldið

(Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)

gegn

Ásgeiri Þór Ingasyni

 

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 17. maí sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 16. apríl sl., á hendur Ásgeiri Þór Ingasyni, til heimilis að Seljalandi 1, Reykjavík,  

 

fyrir umferðarlagabrot

með því að hafa, að kvöldi sunnudagsins 10. september 2017, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 3,07 ‰) um athafnasvæði Atlantsolíu við Suðurlandsveg á Selfossi.

 

Teljast brot ákærða varða við 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, allt sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987 með áorðnum breytingum og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist með vísan til 2. mgr. 107. gr. a umferðarlaga nr. 50, 1987 að bifreiðin […] verði gerð upptæk.

 

Ákærði mætti við þingfestingu málsins og lýsti yfir að hann óskaði ekki eftir skipun verjanda. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Mótmælti ákærði þá kröfu ákæruvaldsins um upptöku ökutækisins PD-494 og kvaðst ekki vera raunverulegur eigandi þess þó hann væri skráður fyrir því.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði fimm sinnum áður sætt refsingu, í öll skiptin vegna umferðarlagabrota. Þann 17. október 2014 var ákærða gerð sekt vegna aksturs sviptur ökurétti. Þann 24. nóvember sama ár var ákærða dæmdur hegningarauki við framangreinda sektargerð og honum gerð sekt vegna ölvunaraksturs auk aksturs sviptur ökurétti. Var þá jafnframt áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða. Þann 11. júní 2015 var ákærða gerð sekt vegna ölvunaraksturs og aksturs sviptur ökurétti og honum gerð sekt, jafnframt því sem ævilöng svipting ökuréttar hans var áréttuð. Loks var ákærði þann 31. ágúst 2017 fundinn sekur um ölvunarakstur og honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, auk þess sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar hans. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærða ekki áhrif á ákvörðun refsingar í máli þessu.

Refsing ákærða er að virtum sakaferli hans hæfilega ákveðin fangelsi í 90 daga. Með vísan til dómvenju þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til 101. og 102. gr., þó einkum 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, er ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð. Með vísan til 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, með síðari breytingum, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem nemur samkvæmt yfirliti lögreglu samtals 35.498 kr. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hafði ákærði þrisvar sinnum á síðustu þremur árum, fyrir brot það sem lýst er í ákæru sætt refsingu sem og ökuréttarsviptingu, vegna brota gegn 1., sbr. 3. mgr. 45. gr. umferðarlaga, þ.e. ölvunarakstur þar sem vínandamagn í blóði nemur meira en 1,2‰. Ákærði er nú fundinn sekur um brot gegn sama ákvæði og hann sviptur ökurétti vegna þess. Að framansögðu virtu þykja uppfyllt skilyrði 2. mgr. 107. gr. a. umferðarlaga nr. 50/1987, enda er ákærði samkvæmt gögnum málsins skráður eigandi umrædds ökutækis. Með vísan til þessa og að því virtu að framangreint ákvæði laganna er ófrávíkjanlegt ber að fallast á kröfu ákæruvaldsins um upptöku framangreinds ökutækis líkt og greinir í dómsorði.

Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

D ó m s o r ð :

Ákærði, Ásgeir Þór Ingason, sæti fangelsi í 90 daga.

Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, 35.498 krónur.

Gerð er upptæk bifreiðin […].

 

                                                                        Sólveig Ingadóttir.