• Lykilorð:
  • Líkamsárás
  • Fangelsi
  • Skilorð

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Vestfjarða 31. janúar 2018 í máli nr. S-48/2017:

Ákæruvaldið

(Bryndís Ósk Jónsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Kristján Óskar Ásvaldsson hdl.)

 

I

Mál þetta, sem dómtekið var 17. janúar sl., höfðaði lögreglustjórinn á Vestfjörðum með ákæru 27. október 2017 á hendur ákærða „ X, kennitala […], […], […], fyrir líkamsárás, með því að hafa þann 4. ágúst 2017, veist að barnsmóður sinni, A, kennitala […], á heimili þeirra, […] á […], gripið hana hálstaki, og ýtt henni sem varð til þess að hún féll í gólfið, og hlaut hún við árásina fleiðusár á hálsi, til hliðar við barkann vinstra megin, og þreifieymsli á hálsinn.

Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.“

 

II

 

Fyrirkall í máli þessu var gefið út 1. nóvember 2017 og birt fyrir ákærða
2. nóvember s.á. Við þingfestingu málsins 15. nóvember 2017 sótti ákærði ekki þing en fyrir hans hönd sótti þing Kristján Óskar Ásvaldsson lögmaður og lagði fram umboð ákærða og var lögmaðurinn skipaður verjandi ákærða samkvæmt ósk hans þar um. Var málinu frestað til 6. desember 2017. Ákærði sótti þá ekki þing og var þá gefið út útivistarfyrirkall, sem birt var ákærða þann 7. desember 2017. Hvorki ákærði né verjandi hans mættu til fyrirtöku málsins þann 17. janúar 2018 og var málið þá að kröfu sækjanda dómtekið á grundvelli 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 24. gr. laga nr. 78/2015. Samkvæmt framansögðu og með vísan til 1. mgr. 161. gr., sbr. 1. mgr. 155. gr. laga nr. 88/2008 verður dómur lagður á málið þrátt fyrir útivist ákærða þar sem framlögð gögn þykja nægileg til sakfellingar. Telst sannað að ákærði hafi gerst sekur um það brot sem honum er gefið að sök í ákæru og það þar réttilega heimfært til refsiákvæða.

 

III

Ákærði er fæddur árið […]. Samkvæmt vottorði sakaskrár hefur hann ekki áður sætt refsingu. Með vísan til þess og að virtu broti ákærða þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að tveimur árum liðnum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærði greiði allan sakarkostnað, 134.000 krónur, þóknun skipaðs verjanda Kristjáns Óskars Ásvaldssonar lögmanns 107.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti auk 27.000 króna vegna annars sakarkostnaðar.

Bergþóra Ingólfsdóttir dómstjóri kveður upp dóminn.

 

D Ó M S O R Ð:

Ákærði X …., sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að tveimur árum liðnum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði samtals 134.000 krónur í sakarkostnað þar með talin þóknun skipaðs verjanda síns Kristjáns Óskars Ásvaldssonar lögmanns 107.000 krónur og 27.000 krónur í annan sakarkostnað.   

  Bergþóra Ingólfsdóttir