• Lykilorð:
  • Svipting ökuréttar
  • Ölvunarakstur

D Ó M U R

Héraðsdóms Vesturlands 24. október 2018 í máli nr. S-43/2018:

Ákæruvaldið

(Jón Haukur Hauksson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Einari I. Kristinssyni

 

Mál þetta höfðaði lögreglustjórinn á Vesturlandi með ákæru 15. ágúst 2018 á hendur ákærða, Einari I. Kristinssyni, kt. …, Löngumýri 33, Selfossi. Málið var dómtekið 18. október 2018.

Í ákæruskjali er ákærða gefið að sök „að hafa laugardaginn 26. maí 2018 ekið bifreiðinni MY459, óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa áfengis (2,56‰ greindist í blóðsýni), á Merkigerði og Heiðargerði á Akranesi, þar sem lögreglan stöðvaði aksturinn.

Telst þetta varða við 1. mgr. sbr. 3. mgr. 45. gr. sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga með síðari breytingum.

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið það brot sem honum er gefið að sök í ákæru og er játning hans studd sakargögnum. Eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotið, sem réttilega er fært til refsilaga í ákæru.

Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur hann frá árinu 2011 hlotið þrjá dóma  fyrir brot gegn umferðarlögum. Með því broti sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir í máli þessu hefur hann í þriðja sinn verið sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.

Refsing ákærða þykir að broti hans virtu hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga.

Þá þykir rétt, svo sem krafist er í ákæru og með vísan til 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, að svipta ákærða ökurétti ævilangt.

Loks verður ákærði með vísan til. 235. gr. laga nr. 88/2008 dæmdur til að greiða sakarkostnað samkvæmt yfirliti lögreglu, svo sem greinir í dómsorði.

Guðfinnur Stefánsson, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Einar I. Kristinsson, sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði er svipt ökurétti ævilangt.

Ákærði greiði 38.213 krónu í sakarkostnað

 

 

Guðfinnur Stefánsson