Héraðsdómur Reykjaness     Dómur  29. september 2022     Mál nr.  S - 1006/2022 :     Ákæruvaldið   ( Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari )   g egn   Dawid Godlewski         Dómur   Mál þetta, sem dómtekið var  8 .  september   sl., er höfðað með ákæru útgefinni af  lögreglustjóranum á  Suðurnesjum   23 .  maí   2022 á hendur  Dawid Godlewski, f.d.  [...] ,  ríkisborgara Póllands ;   ,, fyrir brot gegn lögum um ávana -   og fíkniefni, með því að hafa, föstudaginn 25.  mars 2022, staðið að innflutningi á 851 töflum af ávana -   og fíknilyfinu OxyContin 80 mg  (virkt efni: Oxycodonum), sem ákærði flutti ólöglega til landsins með flugi nr.  [...]   frá   Gdansk, Póllandi, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Efnin flutti ákærði  ólöglega til landsins falin inni í sælgætispoka, MIMI, sem var í farangurstösku sem ákærði  hafði meðferðis við komuna til landsins þegar ákærði var stöðvaður í tollh liði.    Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. sbr. 4 . mgr. 3. gr., sbr. 5. laga nr. 65/1974,  sbr. lög nr. 60/1980, lög nr. 13/1985, lög nr. 10/1997 og lög nr. 68/2001 og 2., 3. og 6. gr.,  sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana -   og fíkniefni og önnur  eftirlitsskyld efni nr.  233/2001, sbr. reglugerð nr. 105/2021.   Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls  sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku á ofangreindum 851 OxyContin 80 mg töflum, með  vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr.     Fyrirkall var fyrst gefið út 7. júní 2022 en birting þess tókst ekki.  Í fyrirkalli,  sem var gefið út  20 .  júní   2022 og birt  2 .  ágúst   s.á , var tekið fram að sækti ákærði ekki  þing mætti hann búast við  því að fjarvist hans yrði metin til jafns við það að hann   2     viðurkenndi að hafa framið brot þau sem hann væri ákærður fyrir og að dómur yrði lagður  á málið að honum fjarstöddum. Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins  8 .  september   sl. og boðaði ekki  forföll og var málið þá dómtekið á grundvelli 1. mgr. 161.  gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.    Dómurinn telur þannig sannað, með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að  öðru leyti, að ákærði hafi framið þá háttsemi sem ákært er út af og er brot ákæ rða rétt  heimfært til refsiákvæða í ákærunni.    Ákærði er fæddur í  [...] .  Sakavottorð  ákærða,  sem  er   pólskur  ríkisborgari,   liggur  ekki  frammi  í  málinu. Engra  gagna nýtur um að ákærði hafi áður  gerst  sekur  um refsiverða háttsemi.   Verður við ákvör ðun refsingar tekið mið af þeirri staðreynd.  Refsing ákærða  þykir samkvæmt  öllu framansögðu   réttilega ákveðin  fangelsi í  fjóra   mánuði.     Þá sæti ákærði upptöku á OxyContin töflum sem haldlagðar voru af lögreglu líkt  og nánar greinir í dómsorði.   Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til að greiða  allan sakarkostnað, alls  39 . 060   krónur. Um er að ræða kostnað vegna  skoðunar á  símaupplýsingum ákærða .    Dóm þennan kveður upp Erna Björt Árnadóttir aðstoðarmaður dómara.     Dóms orð:     Ákærði,  Dawid Godlewski,   sæti fangelsi í  fjóra   mánuði.     Ákærði  sæti upptöku á 8 51   OxyContin 80 mg töflum.      Ákærði greiði  39 . 060   krónur í sakarkostnað.      Erna Björt Árnadóttir