Gjaldskrá
Upplýsingar um bankareikning Héraðsdóms Austurlands:
Allar greiðslur eiga að fara inn á reikning nr. 305-26-105, kt. 661191-3689 og senda skal kvittun á eydis.eythorsdottir@domstolar.is.
Mikilvægt er að það komi fram á kvittununum fyrir hvað er verið að greiða.
Gjaldskrá | Gjald |
---|---|
Afritun og afhending gagna með rafrænum hætti hver bls. allt að 10 bls. | 300 kr. |
Afritun umfram 10 bls. hver bls. | 150 kr. |
Ágreiningsmál vegna nauðungarsölu o.fl. | 20.000 kr. |
Beiðni um aðfararheimild | 20.000 kr. |
Beiðni um heimild til að leita nauðasamninga (nema nauðasamninga til greiðsluaðlögunar) | 20.000 kr. |
Beiðni um heimild til greiðslustöðvunar | 20.000 kr. |
Beiðni um opinber skipti | 20.000 kr. |
Búsforræðisvottorð (forræðisvottorð) | 2.500 kr. |
Dómkvaðning matsmanna | 20.000 kr. |
Eftirgerð af hljóðupptöku 60 mín. | 900 kr. |
Eftirgerð af hljóðupptöku 90 mín. | 1.000 kr. |
Eftirgerð myndbandsupptöku | 2.200 kr. |
Endurrit eða ljósrit hver síða | 300 kr. |
Kærugjald til Landsréttar (ekki rannsóknarúrskurðir) | 70.000 kr. |
Krafa um gjaldþrotaskipti | 20.000 kr. |
Krafa um niðurfellingu heimildar til að leita nauðasamninga (nema nauðasamninga til greiðsluaðlögunar) | 20.000 kr. |
Krafa um niðurfellingu heimildar til greiðslustöðvunar | 20.000 kr. |
Krafa um staðfestingu nauðasamnings (nema nauðasamnings til greiðsluaðlögunar) | 20.000 kr. |
Sjópróf og önnur sönnunarfærsla fyrir héraðsdómi | 20.000 kr. |
Staðfesting dómsgerða | 2.200 kr. |
Stefnuútgáfa | 20.000 kr. |
Vitnamál | 20.000 kr. |
Fyrir þingfestingu | Gjald |
---|---|
Af stefnufjárhæð allt að 3.000.000 kr. | 20.000 kr. |
Af stefnufjárhæð frá 3.000.000 kr. að 30.000.000 kr. og vegna mála þar sem krafist er viðurkenningar á réttindum og/eða skyldu | 42.000 kr. |
Af stefnufjárhæð frá 30.000.000 kr. að 90.000.000 | 122.000 kr. |
Af stefnufjárhæð frá 90.000.000 kr. að 150.000.000 kr. | 202.000 kr. |
Af stefnufjárhæð frá 150.000.000 kr. og fjárhæðum umfram það | 337.000 kr. |
Af tilgreindri fjárhæð í ágreiningsmáli vegna gjaldþrotaskipta og ágreiningsmálum vegna opinberra skipta á dánarbúum, opinberra skipta til fjárslita milli hjóna og sambúðarfólks og opinberra skipta til slita á félögum þar sem félagsmenn bera ótakmarkaða ábyrgð greiðist þingfestingargjald skv. a., b., c., d. og e. lið 2. tl. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs eftir því sem við á.
Þingfestingargjald er greitt fyrir sakaukasök, gagnsök, meðalgöngusök og framhaldssök.
Engin gjöld greiðast í eftirfarandi málum:
Vinnulaunamálum, lögræðissviptingarmálum, barnsfaðernismálum, málum til véfengingar á faðerni, kjörskrármálum, gjafsóknarmálum að því leyti sem gjald yrði lagt á gjafsóknarhafa, einkarefsimálum, forsjármálum, málum v/bráðabirgðaforsjár og farbanns barna, barnaverndarmálum og afhendingarmálum skv. lögum nr. 160/1995 (afhending barns). Félagsdómsmál, nema ritlaun (endurrit).
Um gjaldskrána:
Dómsmálagjöldum var síðast breytt 1. janúar 2023 en þau eru innheimt á grundvelli laga um aukatekjur ríkissjóðs nr. 88/1991 með síðari breytingum.