Um dómstólinn
Skrifstofa dómstólsins er opin frá kl. 9.00 til 12.00 og 13.00 til 16.00 alla virka daga.
Dómstjóri er Hákon Þorsteinsson.
Þingstaður: Héraðsdómur Austurlands, Lyngási 15, Egilsstöðum.
Upplýsingar um dómsmálagjöld og reikningsnúmer má finna hér.
Regluleg dómþing í einkamálum eru haldin 1. fimmtudag hvers mánaðar kl. 14.00.
Héraðsdómur Austurlands starfar samkvæmt lögum nr. 50/2016.
Umdæmi Héraðsdóms Austurlands er ein dómþinghá, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1109/2010.
Sveitarfélög sem heyra undir Héraðsdóm Austurlands eru:
- Fjarðabyggð
- Fljótsdalshreppur
- Múlaþing
- Sveitarfélagið Hornafjörður
- Vopnafjarðarhreppur.
Hlé eru á reglulegum dómþingum í einkamálum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum, ár hvert. Þá falla regluleg dómþing í einkamálum niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.