- Fangelsi
- Skilorðsbundnir dómar
- Þjófnaður
D Ó M U R
Héraðsdóms
Norðurlands eystra 12. mars 2019 í máli nr. S-218/2018:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
Svölu Bergmann Hjaltadóttur
Mál þetta, sem var dómtekið 7. mars sl., var
höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 17. desember
2018, á hendur Svölu Bergmann Hjaltadóttur, [...]
„fyrir eftirtalin hegningarlagabrot:
I.
Tilraun til þjófnaðar,
með því að hafa miðvikudaginn 31. október 2018, í versluninni [...] í
þjófnaðarskyni tekið tvennar buxur í versluninni og sett í innkaupakerru sem
hún kom með sér inn í verslunina en var stöðvuð af starfsmönnum þegar
þjófavarnarkerfið fór í gang þegar hún var á leiðinni út með vörurnar. Verðmæti þessara vara var 11.998 krónur.
Telst þetta varða við 1.
mgr. 244. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga
nr. 19/1940.
II.
Þjófnað með því að hafa
þriðjudaginn 13. nóvember 2018, í versluninni [...], stolið slá með loðkraga að
verðmæti 12.990 krónur og kjól að verðmæti 9.990 krónur.
Telst þetta varða við 1.
mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákærða sótti ekki þing, þrátt fyrir að hafa verið birt fyrirkall. Þar var þess getið að málið kynni að verða dæmt að henni fjarstaddri, sbr. 1. mgr. 155. gr. laga nr. 88/2008. Er því heimilt samkvæmt 1. mgr. 161. gr. sömu laga með áorðnum breytingum að leggja dóm á málið að ákærðu fjarverandi, enda varðar brot ekki þyngri viðurlögum en þar er áskilið í a-lið og framlögð gögn verða talin nægjanleg til sakfellingar. Verður ákærða sakfelld fyrir þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til refsiákvæða.
Þann 2. mars 2018 gerði ákærða sátt við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra um greiðslu 20.000 króna sektar vegna þjófnaðar. Sú sátt hefur ítrekunaráhrif við ákvörðun refsingar nú. Refsing ákærðu er ákveðin fangelsi í 45 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið, eins og nánar greinir í dómsorði.
Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.
Arnbjörg Sigurðardóttir settur héraðsdómari kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð :