• Lykilorð:
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Skjalafals

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness fimmtudaginn 1. nóvember 2018 í máli nr. S-512/2018:

Ákæruvaldið

(Súsanna Björg Fróðadóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Ali Zare

(Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)

 

Mál þetta, sem dómtekið var 5. október 2018, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á Suðurnesjum þann sama dag á hendur ákærða, Ali Zare, fæddum […], írönskum ríkisborgara;

fyrir skjalafals, með því að hafa, mánudaginn 17. september 2018, framvísað við landamæraeftirlit í flugstöð Leifs Eiríkssonar, í blekkingarskyni, er hann var á leið til Manchester, Bretlandi, með flugi nr. FI440, breytifölsuðu frönsku vegabréfi, nr. […], á nafni […], fd. […], með gildistíma frá 03.11.2010 til 2.11.2020.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með ákæru, sem einnig var útgefin 5. október 2018, var annað sakamál, sem fékk númerið S-513/2018 hér fyrir dómi, höfðað af lögreglustjóranum á Suðurnesjum gegn ákærða;

„fyrir skjalafals, með því að hafa, fimmtudaginn. 4. október 2018, framvísað við landamæraeftirlit í flugstöð Leifs Eiríkssonar, í blekkingarskyni, er hann var á leið til Dublin, Írlandi, með flugi nr. WW-854, breytifölsuðu frönsku vegabréfi, nr. […], á nafni […], fd. […], með gildistíma frá 09.06.2011 til 08.06.2021.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.“

Við þingfestingu 5. október sl. var mál nr. S-513/2018 sameinað máli þessu.

Ákæruvaldið krefst þess í málinu að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá gerir verjandi ákærða kröfu um hæfilega þóknun sér til handa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Forsendur og niðurstaða:

Við þingfestingu máls þessa játaði ákærði brot sín án undandráttar. Játning ákærða fær stoð í gögnum málsins. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákærum og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Sakavottorð ákærða, sem er íranskur ríkisborgari, liggur ekki frammi í málinu. Engra gagna nýtur um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Verður við ákvörðun refsingar tekið mið af þeirri staðreynd, sem og skýlausri játningu ákærða.

Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ákærði geti talist hafa stöðu flóttamanns. Eins og málið liggur fyrir þykja því ekki vera efni til þess að víkja frá fastmótaðri dómvenju í málum sem þessu. Refsing ákærða þykir samkvæmt því réttilega ákveðin fangelsi í 45 daga.

Eftir úrslitum málsins, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma ákærða til greiðslu sakarkostnaðar. Eingöngu er um að ræða þóknun skipaðs verjanda ákærða, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, er hæfilega þykir ákveðin svo sem í dómsorði greinir, og ferðakostnað verjanda, 10.080 krónur.

Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð:

            Ákærði, Ali Zare, fæddur […], sæti fangelsi í 45 daga.

            Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, 210.800 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum, og útlagðan ferðakostnað verjandans, 10.080 krónur.

 

Kristinn Halldórsson