• Lykilorð:
  • Umferðarlagabrot
  • Ökuréttarsvipting

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness þriðjudaginn 5. mars 2019 í máli nr. S-489/2018:

 

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Mateusz Pojawis

 

            Mál þetta, sem var tekið til dóms 5. febrúar 2019, höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 1. október 2018, á hendur Mateusz Pojawis, kt. 000000-0000, [...]; ,,fyrir eftirtalin brot á umferðarlögum:

I.

          Með því að hafa, laugardaginn 13. janúar 2018 ekið bifreiðinni [...] á Hafnargötu og inn á Faxabraut, Reykjanesbæ, sviptur ökuréttindum.

          Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

II.

          Með því að hafa, mánudaginn 13. ágúst 2018 ekið bifreiðinni [...] suður Valhallarbraut, Reykjanesbæ, sviptur ökuréttindum og undir áhrifum ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði (325 ng/ml amfetamín í blóði) og því ekki verið fær um að stjórna bifreiðinni örugglega.

          Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

          Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þess er jafnframt krafist að ákærða verði gert að sæta sviptingu ökuréttar, sbr. 1. mgr. 101. gr. og 102. gr.  umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. lög nr. 44/1993 og lög nr. 66/2006.“

 

Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins 5. febrúar 2019 og boðaði ekki forföll en í fyrirkalli sem var ásamt ákæru löglega birt 26. janúar 2019 var tekið fram að yrði ekki sótt þing af hans hálfu mætti hann búast við því að fjarvist hans yrði metin til jafns við það að hann viðurkenndi að hafa framið þau brot sem hann væri ákærður fyrir og að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti telur dómurinn þannig sannað að ákærði hafi framið þau brot sem ákært er út af og eru brot hans réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákærunni.

          Ákærði er fæddur [...] og hefur tvívegis áður sætt refsingu samkvæmt framlögðu sakavottorði. Ákærði gekkst undir sektargerð lögreglustjóra 14. október 2016 þess efnis að ákærði samþykkti greiðslu 70.000 króna sektar og að sæta sviptingu ökuréttar í fjóra mánuði fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með sektargerð lögreglustjóra 10. janúar 2018 samþykkti ákærði greiðslu sektar að fjárhæð 200.000 krónur og að sæta sviptingu ökuréttar í tvö ár fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

            Samkvæmt því sem að framan greinir um sakaferil ákærða og að brotum hans virtum, sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing hans samkvæmt dómvenju réttilega ákveðin fangelsi í 30 daga.

Með vísan til framangreinds ber, í samræmi við kröfugerð ákæruvalds og með vísan til 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, að svipta ákærða ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.

Á grundvelli sakfellingar ákærða, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður honum gert að greiða allan sakarkostnað málsins sem, samkvæmt framlögðu yfirliti sækjanda um slíkan kostnað og með stoð í öðrum gögnum málsins, nemur samtals 91.960 krónum.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

DÓMSORÐ:

            Ákærði, Mateusz Pojawis, sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.

Ákærði greiði 91.960 krónur í sakarkostnað.

 

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir