• Lykilorð:
  • Ávana- og fíkniefni
  • Umferðarlagabrot
  • Ökuréttarsvipting

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness föstudaginn 1. mars 2019 í máli nr. S-465/2018:

 

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Hreiðari Haukssyni

 

            Mál þetta, sem var tekið til dóms 1. febrúar 2019 höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 1. október 2018 á hendur Hreiðari Haukssyni, kt. 000000-0000, [...]; ,,fyrir eftirtalin brot á umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni:

I.

Með því að hafa, mánudaginn 26. mars 2018, ekið bifreiðinni [...] á Linnetstíg, við Héraðsdóm Reykjaness, Hafnarfirði, sviptur ökuréttindum, án lögboðinnar vátryggingar og undir  áhrifum ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði (105 ng/ml amfetamín, 60 ng/metamfetamín og 1,0 ng/ml tetrahýdrókannabínól í blóði) og því ekki verið fær um að stjórna bifreiðinni örugglega.

          Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a., 1. mgr. 48. gr. og 1. mgr. 93. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

II.

          Fyrir fíkniefnalagabrot mánudaginn 26. mars 2018, með því að hafa haft í vörslum sínum í buxnavasa sínum samtals 3,35 g  af amfetamíni sem ákærði framvísaði í kjölfar afskipta lögreglunnar sbr. ákærulið I.

          Telst þessi háttsemi varða við 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 490/2001, reglugerð nr. 248/2002 og reglugerð nr. 848/2002.

III.

          Með því að hafa, mánudaginn 26. mars 2018, ekið bifreiðinni [...] á Grindavíkurvegi, skammt sunnan við Nesveg, Grindavík, sviptur ökuréttindum, án lögboðinnar vátryggingar, án þess að hafa skráningarmerki á bifreiðinni og undir  áhrifum ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði (100 ng/ml amfetamín, 50 ng/metamfetamín og 4,2 ng/ml tetrahýdrókannabínól í blóði) og því ekki verið fær um að stjórna bifreiðinni örugglega.

          Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a., 1. mgr. 48. gr., 1.  mgr. 63. gr. og 1. mgr. 93. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

IV.

          Með því að hafa, fimmtudaginn 5. júlí 2018, ekið bifreiðinni [...] austur Reykjanesbraut, vestan Voga, Vogum, sviptur ökuréttindum og undir  áhrifum ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði (120 ng/ml amfetamín, 50 ng/ml metamfetamín og 1,3 ng/ml tetrahýdrókannabínól í blóði) og því ekki verið fær um að stjórna bifreiðinni örugglega.

          Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

          Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þess er jafnframt krafist að ákærða verði gert að sæta sviptingu ökuréttar, sbr. 1. mgr. 101. gr. og 102. gr.  umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. lög nr. 44/1993 og lög nr. 66/2006. Jafnframt er þess krafist að gerð verði upptæk haldlögð fíkniefni sbr. II lið ákæruskjals, 3,25 g af amfetamíni, skv. heimild í 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 68/2001 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“ 

 

Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins 1. febrúar 2019 og boðaði ekki forföll en í fyrirkalli sem var ásamt ákæru löglega birt 24. janúar 2019 var tekið fram að yrði ekki sótt þing af hans hálfu mætti hann búast við því að fjarvist hans yrði metin til jafns við það að hann viðurkenndi að hafa framið þau brot sem hann væri ákærður fyrir og að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti telur dómurinn þannig sannað að ákærði hafi framið þau brot sem ákært er út af og eru brot hans réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákærunni.

          Ákærði er fæddur [...] og á samkvæmt framlögðu sakavottorði að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 2008. Við ákvörðun refsingar ákærða í máli þessu hefur eftirfarandi áhrif; Með dómi 11. júní 2015 var ákærði dæmdur til greiðslu 280.000 króna sektar og var gert að sæta sviptingu ökuréttar í 18 mánuði fyrir að hafa tvívegis á árinu 2014 ekið án ökuréttinda og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ákærði gekkst undir sektargerð lögreglustjóra 15. mars 2016 þess efnis að ákærði samþykkti greiðslu sektar að fjárhæð 75.000 krónur og að sæta sviptingu ökuréttar í tvo mánuði fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og án þess að endurnýja ökuskírteini sitt 7. febrúar 2015. Með sektargerð lögreglustjóra 4. ágúst 2017 samþykkti ákærði greiðslu 260.000 króna sektar og að sæta sviptingu ökuréttar í tvö ár fyrir akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

          Samkvæmt því sem að framan greinir um sakaferil ákærða og að brotum hans virtum, sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 75 daga.

          Með vísan til framangreinds ber, í samræmi við kröfugerð ákæruvalds og með vísan til 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, að svipta ákærða ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.

Með vísan til kröfugerðar ákæruvaldsins, gagna málsins og tilgreindra lagaákvæða í ákæru verða gerð upptæk 3,25 g af amfetamíni.

Á grundvelli sakfellingar ákærða, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður honum gert að greiða allan sakarkostnað málsins sem, samkvæmt yfirlitum sækjanda um slíkan kostnað og með stoð í öðrum gögnum málsins, nemur samtals 441.954 krónum.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

DÓMSORÐ:

            Ákærði, Hreiðar Hauksson, sæti fangelsi í 75 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.

Ákærði sæti upptöku á 3,25 g af amfetamíni.

Ákærði greiði 441.954 krónur í sakarkostnað.

 

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir