• Lykilorð:
  • Játningarmál

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness þriðjudaginn 30. apríl 2019 í máli nr. S-111/2019:

 

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Maziar Kazemi

(Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)

 

            Mál þetta, sem var tekið til dóms 3. apríl 2019, höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 18. febrúar 2019, á hendur Maziar Kazemi, [...], írönskum ríkisborgara;

            ,,fyrir skjalafals og brot á lögum um útlendinga, með því að hafa, laugardaginn 13. október 2018, framvísað við landamæragæslu í flugstöð Leifs Eiríkssonar, í blekkingarskyni, er hann kom til landsins frá Madrid, Spáni, með flugi [...], breytifölsuðu vegabréfi frá Rúmeníu, ánöfnuðu [...], fd. [...], nr. [...] með gildistíma 11.10.2010 til 11.10.2020 en ákærði hafði jafnframt í vörslum sínum grunnfalsað rúmenskt kennivottorð, nr. [...], ánafnað sama aðila, með gildistíma frá 31.07.2017 til 30.07.2027.

            Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og h. lið 2. mgr. 116. gr. um útlendinga nr. 80/2016.

            Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

            Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá gerir verjandi kröfu um hæfilega þóknun sér til handa vegna starfa á rannsóknarstigi og fyrir dómi.

 

Við þingfestingu máls þessa játaði ákærði brot sitt án undandráttar. Játning ákærða fær stoð í gögnum málsins. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Sakavottorð ákærða liggur ekki frammi í málinu. Engra gagna nýtur við um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Verður við ákvörðun refsingar tekið mið af þeirri staðreynd, sem og skýlausri játningu ákærða.

Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ákærði geti talist hafa stöðu flóttamanns. Eins og málið liggur fyrir þykja því ekki vera efni til þess að víkja frá fastmótaðri dómvenju í málum sem þessu. Samkvæmt því sem að framan greinir, sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing ákærða réttilega ákveðin fangelsi í 30 daga.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað málsins, sem er þóknun skipaðs verjanda hans á rannsóknarstigi og fyrir dómi, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, er hæfilega þykir ákveðin 147.560 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

DÓMSORÐ:

            Ákærði, Maziar Kazemi, [...], sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, 147.560 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum.

 

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir