• Lykilorð:
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Skjalafals

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness fimmtudaginn 1. nóvember 2018 í máli nr. S-505/2018:

Ákæruvaldið

(Súsanna Björg Fróðadóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Eno Llupo

(Úlfar Guðmundsson lögmaður)

 

Mál þetta, sem dómtekið var 17. október 2018, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum útgefinni 1. sama mánaðar á hendur ákærða, Eno Lluop, fæddum […];

„fyrir skjalafals, með því að hafa, þriðjudaginn 25. september 2018, framvísað við lögreglu, í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, í blekkingarskyni ítölsku kennivottorði nr. […] á nafni […], fd. […] í Ítalíu, með gildistíma frá 21. september 2016 til 21. maí 2026, sem [hafði verið stolið] óútfylltu (blank stolen), og því ekki lögmætur handhafi þess, er ákærði kom í vegabréfaskoðun vegna flugs WW-852 til Dublin, Írlandi.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá gerir verjandi ákærða kröfu um hæfilega þóknun sér til handa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Niðurstaða:

Við þingfestingu máls þessa játaði ákærði brot sitt án undandráttar. Játning ákærða fær stoð í gögnum málsins. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Sakavottorð ákærða, sem er albanskur ríkisborgari, liggur ekki frammi í málinu. Engra gagna nýtur um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Verður við ákvörðun refsingar tekið mið af þeirri staðreynd, sem og skýlausri játningu ákærða.

Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ákærði geti talist hafa stöðu flóttamanns. Eins og málið liggur fyrir þykja því ekki vera efni til þess að víkja frá fastmótaðri dómvenju í málum sem þessu. Refsing ákærða þykir samkvæmt því réttilega ákveðin fangelsi í 30 daga.

Eftir úrslitum málsins, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma ákærða til greiðslu sakarkostnaðar. Eingöngu er um að ræða þóknun skipaðs verjanda ákærða, Úlfars Guðmundssonar lögmanns, er hæfilega þykir ákveðin svo sem í dómsorði greinir.

Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Eno Lluop, fæddur […], sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Úlfars Guðmundssonar lögmanns, 147.560 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum.

 

Kristinn Halldórsson