Um dómstólinn
Héraðsdómur Reykjaness, Fjarðargötu 9, Hafnarfirði. Sími: 432-5100
Opnunartími afgreiðslu
- Mánudag - fimmtudag kl. 08.30 til 15.00.
- Föstudag kl. 08.30 til 14.00.
Opnunartími dómhúss
- Mánudag - fimmtudag kl. 08.30 til 16.00.
- Föstudag kl. 08.30 til 14.00.
Dómstjóri
Jónas Jóhannsson.
Þingstaður
Héraðsdómur Reykjaness, Fjarðargötu 9, Hafnarfirði.
Upplýsingar um dómsmálagjöld og reikningsnúmer má finna hér.
Regluleg dómþing í einkamálum eru haldin hvern miðvikudag kl. 9.00 í dómsal 1.
Héraðsdómur Reykjaness starfar samkvæmt lögum nr. 50/2016.
Umdæmi Héraðsdóms Reykjaness er ein dómþinghá, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1109/2010.
Eftirtalin sveitarfélög heyra til umdæmis hans: Garðabær, Grindavíkurbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Kópavogsbær, Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Garður og Sveitarfélagið Vogar.
Hlé eru á reglulegum dómþingum í einkamálum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum, ár hvert. Þá falla regluleg dómþing í einkamálum niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.