• Lykilorð:
  • Hegningarauki
  • Játningarmál
  • Líkamsárás
  • Fangelsi
  • Skilorð

D Ó M U R

Héraðsdóms Suðurlands fimmtudaginn 1. nóvember 2018 í máli nr. S-187/2018:

Ákæruvaldið

(Arndís Bára Ingimarsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Sigurði Frans Þráinssyni

(Aníta Óðinsdóttir lögmaður)

 

Mál þetta, sem þingfest var 13. september sl. og dómtekið fimmtudaginn 11. október sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans í Vestmannaeyjum þann 24. ágúst  sl., á hendur Sigurði Frans Þráinssyni, […],

 

„fyrir líkamsárás

með því að hafa að kvöldi laugardagsins 20. maí 2017 veist að A á heimili hans að […] og meðal annars slegið hann með krepptum hnefa hægri handar í andlitið allt með þeim afleiðingum að A hlaut grunnan 15 sentimetra skurð hægra megin á höfði, mar og bólgu undir báðum augum, mar og bólgu framan við vinstra gagnauga og væg eymsli við þreifingu, margar skrámur í andlit, mar og væg eymsli á baki neðan við herðablað vinstra megin.

(Mál nr. 319-2017-1967)

 

Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með síðari breytingum.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

 

Ákærði kom fyrir dóminn þann 11. október sl., ásamt skipuðum verjanda sínum, Anítu Óðinsdóttur lögmanni. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði þrisvar sinnum áður sætt refsingu. Þann 8. júlí 2005 var ákærða gert að sæta fangelsi vegna líkamsárasar, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið. Þann 24. janúar 2008 var ákærði fundinn sekur um brot gegn valdstjórninni og honum gert að sæta fangelsi, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið. Þann 1. júní 2018 var ákærði fundinn sekur um líkamsárás og honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Brot þar sem ákærði er nú fundinn sekur um er framið fyrir uppkvaðningu síðastgreinds dóms og verður ákærða því nú dæmdur hegningarauki, með vísan til 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ber að taka framangreinda refsingu upp og dæma með hinu nýja broti, og ákveða refsingu ákærða í einu lagi með vísan til 78. sömu laga. 

Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga. Að virtum atvikum máls og að teknu tilliti til skýlausrar játningar ákærða þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.

Með vísan til 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, með síðari breytingum, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem er þóknun skipaðs verjanda ákærða og þykir hæfilega ákveðin 94.860 kr. að teknu tilliti til virðisaukaskatts.

Sigurður G. Gíslason héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Sigurður Frans Þráinsson, sæti fangelsi í 60 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, 94.860 krónur, sem er þóknun skipaðs verjanda, Anítu Óðinsdóttur lögmanns, að teknu tilliti til virðisaukaskatts.

 

                                                                        Sigurður G. Gíslason