• Lykilorð:
  • Fangelsi
  • Svipting ökuréttar
  • Umferðarlagabrot
  • Ölvunarakstur

D Ó M U R

Héraðsdóms Suðurlands þriðjudaginn 29. janúar 2019 í máli nr. S-286/2018:

Ákæruvaldið

(Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)

gegn

Karli Bachmann Lúðvíkssyni

 

 

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 10. janúar sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 22. nóvember sl., á hendur Karli Bachmann Lúðvíkssyni,

 

I.             fyrir umferðarlagabrot

með því að hafa, aðfaranótt laugardagsins 8. september 2018, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 1,58 ‰) vestur Langholtsveg að Álfheimum í Reykjavík.

 

Teljast brot ákærða varða við 1. mgr. 48. gr. og 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr.  umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga. (007-2018-60867)

 

II.                       fyrir umferðarlagabrot

með því að hafa, þriðjudaginn 23. október 2018, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Bankaveg á Selfossi.

 

Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga. (318-2018-10520)

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987 með áorðnum breytingum og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

 

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru þann 5. desember sl., ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði fimm sinnum áður sætt refsingu. Þann 24. september 2012 var ákærða gerð sekt vegna ölvunaraksturs og hann jafnframt sviptur ökurétti. Þann 29. ágúst 2013 var ákærða gerð sekt vegna aksturs sviptur ökurétti. Þann 12. nóvember 2015 var ákærða í annað sinn gerð sekt vegna ölvunaraksturs og hann jafnframt sviptur ökurétti. Loks var ákærða þann 25. janúar 2018 í annað sinn gerð sekt vegna ölvunaraksturs. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærða ekki áhrif við ákvörðun refsingar í máli þessu.

Að virtum sakaferli ákærða þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 75 daga. Með vísan til dómvenju þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til 101. og 102. gr., þó einkum 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, ber að svipta ákærðu ökurétti ævilangt. Með vísan til 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, með síðari breytingum, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem nemur samkvæmt yfirliti lögreglu samtals 24.255 kr.

Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

D ó m s o r ð :

Ákærði, Karl Bachmann Lúðvíksson, sæti fangelsi í 75 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt, frá birtingu dóms þessa að telja.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, 24.255 krónur.

 

                                                                        Sólveig Ingadóttir.