Um dómstólinn

Héraðsdómur Suðurlands, Austurvegi 4, Selfossi. Sími:432-5080
  

Skrifstofa dómstólsins að Austurvegi 4, Selfossi, er opin frá kl. 9:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 alla virka daga.

Símsvörun er opin frá 9:30 til 12:00 og frá 13:00 til 15:00 alla virka daga. 

Dómstjóri er Sigurður Gísli Gíslason.

Upplýsingar um dómsmálagjöld og reikningsnúmer má finna hér.

Héraðsdómur Suðurlands starfar samkvæmt lögum nr. 50/2016.

Umdæmi Héraðsdóms Suðurlands skiptist í tvær dómþinghár, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1109/2010.

Eftirtalin sveitarfélög heyra til umdæmis hans:

a. Ásahreppur, Bláskógarbyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Hveragerðisbær, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Skaftárhreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Sveitarfélagið Árborg og Sveitarfélagið Ölfus.

Þingstaður: Héraðsdómur Suðurlands, Austurvegi 4, Selfossi.

Regluleg dómþing í einkamálum eru 1. og 3. miðvikudag hvers mánaðar kl.14.00.

Hlé eru á reglulegum dómþingum í einkamálum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum, ár hvert. Þá falla regluleg dómþing í einkamálum niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.

b. Vestmanneyjabær.

Þingstaður: Skrifstofa sýslumanns, Heiðarvegi 15, Vestmannaeyjum.

Regluleg dómþing í einkamálum eru haldin 2. fimmtudag hvers mánaðar kl.15.00,  mánuðina febrúar, mars, apríl, maí, júní, september, október, nóvember og desember.

Þá falla regluleg dómþing í einkamálum niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.