• Lykilorð:
  • Akstur án ökuréttar
  • Ölvunarakstur

D Ó M U R

Héraðsdóms Vesturlands 20. febrúar 2019 í máli nr. S-20/2019:

Ákæruvaldið

(Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Norbert Lapka

 

Mál þetta höfðaði lögreglustjórinn á Vesturlandi með ákæru 1. febrúar 2019 á hendur ákærða, Norbert Lapka, kt. …, Suðurgötu 115, Akranesi. Málið var dómtekið 15. febrúar 2019.

Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða fyrir eftirtalin umferðarlagabrot:

1.

Með því að hafa laugardaginn 22. september 2018 ekið bifreiðinni OO011 án öku­réttinda á Skagabraut á Akranesi.

Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum.

2.

Með því að hafa miðvikudaginn 26. september 2018 ekið bifreiðinni OO011 á Vestur­landsvegi í Hvalfjarðargöngum, án ökuréttinda og með allt að 79 km hraða á klukku­stund, að teknu tilliti til vikmarka, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 70 km á klukku­stund.

Telst þetta varða við 2. sbr. 4. mgr. 37. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr. umferðar­laga nr. 50/1987. 

3.

Með því að hafa föstudaginn 5. október 2018 ekið bifreiðinni OO011 án ökuréttinda og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa áfengis (1,34‰ greindist í blóð­sýni), á Akrafjallsvegi á móts við Innri-Hólm í Hvalfjarðarsveit.

Telst þetta varða við 1. mgr. sbr. 3. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum.

4.

Með því að hafa föstudaginn 12. október 2018 ekið bifreiðinni OO011 á Vesturlands­vegi á móts við Árvelli á Kjalarnesi, án ökuréttinda og með allt að 97 km hraða á klukkustund, að teknu tilliti til vikmarka, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

Telst þetta varða við 2. mgr. 37. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr. umferðar­laga nr. 50/1987.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga með síðari breytingum.

 

Fyrirkall í máli þessu var birt ákærða 10. febrúar 2019. Við þingfestingu málsins 15. sama mánaðar sótti ákærði ekki þing og var málið þá dómtekið að kröfu ákæruvaldsins samkvæmt 1. mgr. 161. gr. laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008. Með vísan til þeirrar lagagreinar þykir mega jafna útivist ákærða til játningar hans, enda fer sú niðurstaða ekki í bága við gögn málsins. Brot ákærða teljast því sönnuð og réttilega heimfærð til laga í ákæruskjali.

Samkvæmt sakavottorði hefur ákærði frá árinu 2014 hlotið tvo dóma og gengist undir fimm lögreglustjórasáttir fyrir brot gegn umferðarlögum.

Með brotum sínum nú hefur ákærði í þriðja sinn gerst sekur um brot gegn 45. gr. umferðarlaga. Að öllu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi.

Með vísan til 101. og 102. gr. umferðarlaga verður ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Loks verður ákærði með vísan til. 235. gr. laga um meðferð sakamála dæmdur til að greiða sakarkostnað samkvæmt yfirliti lögreglu, svo sem greinir í dómsorði.

   Guðfinnur Stefánsson, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

                                      

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Norbert Lapka, sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.

Ákærða greiði 38.148 krónur í sakarkostnað.

                                                                                   

 

                                                                                    Guðfinnur Stefánsson