Um dómstólinn
Afgreiðsla dómstólsins er opin á virkum dögum frá kl. 09:00 - 12:00 og kl. 13:00 - 15:00.
Dómstjóri er Lárentsínus Kristjánsson
Þingstaður: Héraðsdómur Vesturlands, Bjarnarbraut 8, Borgarnesi.
Upplýsingar um dómsmálagjöld og reikningsnúmer má finna hér.
Regluleg dómþing í einkamálum eru 1. þriðjudag hvers mánaðar kl. 14.00.
Héraðsdómur Vesturlands starfar samkvæmt lögum nr. 50/2016.
Umdæmi Héraðsdóms Vesturlands er ein dómþinghá, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1109/2010.
Eftirtalin sveitarfélög heyra til umdæmis hans: Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Dalabyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur, Snæfellsbær og Sveitarfélagið Stykkishólmur.
Hlé eru á reglulegum dómþingum í einkamálum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum, ár hvert. Þá falla regluleg dómþing í einkamálum niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971
Hægt er að ná í starfsmann embættisins utan opnunartíma í síma 860-9099 eða 896-6678.